„Ef við vinnum Brann á heimavelli þeirra verð ég glaður maður“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2026 13:56 Freyr Alexandersson snýr aftur á sinn gamla heimavöll í dag. epa/ELISABETTA BARACCHI Tveimur mánuðum eftir að hafa verið sagt upp hjá Brann mætir Freyr Alexandersson aftur til Björgvinjar í dag. Hann kveðst spenntur fyrir leiknum. „
Þetta verður sérstakt og tilfinningaþrungið en ég hlakka alveg gríðarlega mikið til,“ sagði Freyr um endurkomuna á heimavöll Brann í samtali við TV 2. Freyr stýrði Brann í eitt og hálft ár. Á þeim tíma komst liðið í bikarúrslit og deildarkeppni Evrópudeildarinnar. Þrátt fyrir það var hann látinn fara frá Brann 1. júní. Í viðtalinu við TV 2 segir Freyr að síðasta hálfa árið hjá Brann hafi verið erfitt. „Síðustu sex mánuðirnir voru ekki góðir. Það var líka ein af ástæðunum fyrir því að ég stóðst ekki kröfur yfirmannanna. Þetta voru einhver skilyrði sem voru hræðileg fyrir alla,“ sagði Freyr sem vildi ekki fara nánar út í það í hverju þessi hræðilegu skilyrði hefðu falist. Freyr var ekki lengi án starfs því 17. júní tilkynnti Rosenborg að hann væri nýr þjálfari liðsins. Vilja hafa hlutina einfalda og skýra Rosenborg hefur unnið fyrstu þrjá deildarleikina undir stjórn Freys, skorað tíu mörk og ekki fengið á sig eitt einasta mark. Fyrir vikið hefur staða liðsins í deildinni lagast mikið. „Þetta var lið sem var ekki með sérlega mikið sjálfstraust og margir í, og í kringum, félagið sem voru hræddir við stöðuna. Þetta eru tvær mjög ólíkar sviðsmyndir,“ sagði Freyr. Alfreð Finnbogason er yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg.vísir/anton „Við höfum reynt að gefa leikmönnunum sýn á það hvert við erum að stefna. Við höfum lagt áherslu á sjálfsmynd félagsins og hver ásýnd okkar á að vera. Svo hef ég reynt að halda hlutunum einföldum og skýrum.“ Geta ekki búist við sigri Freyr hlakkar mikið til leiksins á heimavelli Brann en er meðvitaður um hversu krefjandi verkefni dagsins er. „Við getum ekki búist við því að við vinnum Brann á heimavelli þeirra. Fyrst og fremst ætlum við að sjá hvort okkur takist að standa okkur eins og við viljum gegn mjög góðu fótboltaliði,“ sagði Breiðhyltingurinn sem vill þó að sjálfsögðu fara aftur heim til Þrándheims með þrjú stig í farteskinu. „Ef við sigrum Brann á heimavelli þeirra verð ég glaður maður,“ sagði Freyr. View this post on Instagram A post shared by Rosenborg Ballklub (@rosenborgballklub) Hann á von á hörkuleik og átökum á Brann Stadion í dag. „Þetta eru tvö fær fótboltalið sem munu berjast um að ná tökum á leiknum. Mörg einvígi. Þetta verður frábær leikur,“ sagði Freyr. Verður peppaður ef ég þekki hann rétt Þrír Íslendingar leika með Brann; Kristall Máni Ingason, Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon. Sá síðastnefndi, sem lék einnig undir stjórn Freys hjá Leikni R. og Lyngby, ræddi leik dagsins við íþróttadeild. „Ég er alveg búinn að hugsa mikið um þetta. Það verður skrýtið að sjá hann standa hinum megin, í hinum boðvanginum. Við sjáum hvernig orkustigið hans verður, hann verður peppaður ef ég þekki hann rétt,“ sagði Sævar. „Þetta er bara risa leikur fyrir okkur og hann. Það er mikið verið að tala um þetta sem einhvern hefndarleik fyrir hann, ég er ekkert viss um að hann hugsi þetta þannig. Þeir eru á góðu skriði og alltaf þegar þessi tvö stórlið mætast eru hörkuleikir. Ég held þetta verði geggjað, sama hvað.“ Leikur Brann og Rosenborg hefst klukkan 17:15. Einu stigi munar á liðunum í norsku deildinni. Brann er með nítján stig en Rosenborg átján.
Norski boltinn Tengdar fréttir „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Sævar Atli Magnússon er byrjaður að spila aftur eftir erfið meiðsli og bíður spenntur eftir því að mæta fyrrum læriföður sínum, Frey Alexanderssyni, í Íslendingaslag um helgina. 1. ágúst 2026 09:58 „Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Freyr Alexandersson vill sjá betri mætingu á heimaleiki Rosenborg. Liðið hefur unnið alla þrjá keppnisleiki sína síðan hann tók við, án þess að fá á sig mark. 28. júlí 2026 14:47 Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira
„Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Sævar Atli Magnússon er byrjaður að spila aftur eftir erfið meiðsli og bíður spenntur eftir því að mæta fyrrum læriföður sínum, Frey Alexanderssyni, í Íslendingaslag um helgina. 1. ágúst 2026 09:58
„Af hverju er þessi leikvangur ekki troðfullur í hvert einasta skipti?“ Freyr Alexandersson vill sjá betri mætingu á heimaleiki Rosenborg. Liðið hefur unnið alla þrjá keppnisleiki sína síðan hann tók við, án þess að fá á sig mark. 28. júlí 2026 14:47