Danir auka vígbúnað í Færeyjum Agnar Már Másson skrifar 2. ágúst 2026 17:03 Danaher hefur hingað til haft fremur takmarkaða viðveru í Færeyjum. Egill Aðalsteinsson Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.
Samkomulagið var gert í opinberri heimsókn Jeppe Bruus til Færeyja, og ræddu þeir aukið samstarf þjóðanna tveggja, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá danska varnarmálaráðuneytinu. „Við erum stórt konungsríki og höfum nýlega eflt viðbúnað okkar á öllu norðurslóðasvæðinu og Norður-Atlantshafi,“ er haft eftir Bruus í tilkynningunni. Nánari útfærsla samkomulagsins liggur ekki fyrir að sögn ráðherrans. Aukin viðvera geti þó meðal annars falið í sér eftirlitsflug F-35 orrustuþotna auk viðveru freigátna og flutningaflugvéla við Færeyjar. Danski herinn hefur í dag litla fasta viðveru í kringum Færeyjar. TV2 hefur eftir Jon Rahbek-Clemmensen, dósent og faglegum stjórnanda við Miðstöð fyrir öryggisrannsóknir á norðurslóðum hjá danska varnarmálaakademíunni, að í Þórshöfn sé danski hersinn með staðbundna deild. Auk þess hefur frá 2022 staðið yfir uppygging stórrar ratsjárstöð við Sornfelli. Samskipti Færeyja við Rússland hafa lengi sætt gagnrýni. Færeyingar hafa frá 1977 átt samning við Rússland vegna skipta á fiskveiðikvótum, að sögn TV2, sem segir að Færeyingar leggi þannig sitt af mörkum til rússneska hagkerfisins, á sama tíma og danska ríkisstjórnin varar við hernaðarógn Rússlands gagnvart Evrópu. Jeppe Bruus varnarmálaráðherra segist þó hafa engin áform um að þrýsta á færeysku landstjórnina. „Fiskveiðisamningurinn er mál á milli Rússlands og Færeyja, svo ég mun ekki skipta mér af því,“ er haft eftir honum. „En við höfum að sjálfsögðu mjög vökult auga með viðveru Rússa við Færeyjar. Bæði hernaðarlegri og efnahagslegri.“
Danmörk Færeyjar Rússland Hernaður Öryggis- og varnarmál Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira