Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Andri Broddason skrifar 2. ágúst 2026 22:21 Liverpool tapaði gegn Leeds í æfingaleik og duttu fleiri varnarmenn í meiðsli. Shaun Brooks/Getty Images Liverpool tapaði fyrir Leeds í æfingaleik sem var spilaður í Chicago. Liverpool náði forskoti snemma í leiknum en Leeds skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik og endaði á að vinna leikinn 4-2.
Varnarmaðurinn Luke Chambers kom Liverpool í forystu strax á sjöundu mínútu leiksins eftir hornspyrnu frá Milos Kerkez. Seinna í fyrri hálfleiknum náði Florian Wirtz að tvöfalda forystu leiksins með öruggu skoti eftir fyrirgjöf frá Jeremie Frimpong. Eins og hefð er fyrir í æfingaleikjum voru gerðar margar skiptingar og í seinni hálfleik komu margir nýir leikmenn á völlinn fyrir bæði lið. Liverpool-leikmennirnir virtust ekki vera í almennilegum takti við leikinn og minnkaði Leeds muninn í 2-1 með marki frá Brenden Aaronson. Við það brotnaði ísinn hjá Leeds og tíu mínútum síðar jafnaði Dominic Calvert-Lewin metin. Aðeins þrem mínútum eftir það náði Leeds forystunni með marki frá Sean Longstaff. Staðan batnaði ekki fyrir Liverpool þar sem Jeremie Frimpong meiddist í leiknum og þurfti að fara af velli. Ekki góðar fréttir fyrir Liverpool sem er nú þegar fámennt varnarlega eftir að Joe Gomez meiddist í æfingaleik fyrr í sumar. Til að kóróna slæman seinni hálfleik bætti Calvert-Lewin við sínu öðru marki og því fjórða hjá Leeds í seinni hálfleik. Leikurinn endaði því með tveggja marka sigri Leeds 4-2.
Enski boltinn Liverpool FC Leeds United Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Sjá meira