Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Lovísa Arnardóttir skrifar 5. ágúst 2026 13:52 Konan henti miðanum í ruslið þegar hún fékk skilaboð um að ekki væri hægt að greiða út vinning. Myndin er úr safni. Vísir/EPA Ítalskir sorphirðustarfsmenn aðstoðuðu konu við að finna lottómiða sem hún hafði hent í ruslið. Eftir tveggja daga leit í ruslahaugi fannst miðinn. Á miðanum var vinningur að verðmæti einnar milljónar evra, sem samsvarar 142 milljónum íslenskra króna.
Konan henti miðanum í rusl í verslun í Bitonto í suðurhluta Ítalíu eftir að hún skoðaði tölurnar sínar og fékk þau skilaboð í verslun að ekki væri hægt að greiða út vinning. Í frétt BBC segir að konan hafi uppgötvað þegar hún kom heim að líklega væri vinningur á miðanum eftir að ættingjar hennar bentu henni á að tölurnar hennar hefðu verið dregnar úr pottinum. Í kjölfarið var sett af stað tveggja daga leit í „ruslhrúgu“ sem hafði verið sótt úr versluninni sem hún henti miðanum í. Starfsmenn sorphirðufyrirtækisins aðstoðuðu konuna við að finna miðann. „Þetta er ekkert annað en kraftaverk,“ er haft eftir Roberto Nicola Toscano, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, í ítalska miðlinum Ansa. Toscana sagði að konan hefði aðeins fengið skilaboð um að ekki væri hægt að greiða út vinninginn því hann hefði verið of hár fyrir verslunina til að greiða. Þegar konan kom aftur heim benti fjölskylda henni á að tölurnar hennar 2, 4, 8, 10, og 51, hefðu verið dregnar út. „Það var þá sem hún uppgötvaði misskilninginn. Þannig að þau fóru öll í verslunina en komust þá að því að búið væri að henda miðanum og sækja ruslið.“ Fundu bílinn og skoðuðu ruslið Konan hafði þá samband við sorphirðufyrirtækið sem komst að því hvaða bíll hefði sótt ruslið og hvar hann hafði losað sig við ruslið. „Sem betur fer var sunnudagur, annars hefði ruslið þegar verið farið í urðun,“ sagði Toscano. Bíllinn var svo fluttur á stað þar sem ruslið var allt skoðað og eftir tveggja daga leit tókst þeim loks að finna miðann. „Hann var í holóttum poka með öðrum miðum, miðinn hennar var einn af þeim sem voru óskemmdir.“ Fram kemur í frétt BBC að kostnaðurinn við leitina verði greiddur af vinningshafanum sem hafði fyrir leitina skrifað undir yfirlýsingu um að hún myndi greiða allan kostnað við leitina.
Ítalía Fjárhættuspil Mest lesið Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira