Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Aron Guðmundsson skrifar 6. ágúst 2026 09:30 Viktor Gísli missir ekki af leik hjá íslenska landsliðinu á EM undir átján ára landsliða þar sem litli bróðir hans, Alex Unnar, er að spila. Strákunum okkar gengur afar vel á mótinu og þeir mæta Þjóðverjum í dag í átta liða úrslitum Vísir/Samsett Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta, Viktor Gísli Hallgrímsson, fylgist stoltur með bróður sínum á Evrópumóti undir átján ára landsliða þar sem að landslið Íslands er að slá í gegn og á fyrir höndum krefjandi verkefni í átta liða úrslitum gegn Þjóðverjum í dag.
Alex Unnar Hallgrímsson er litli bróðir Viktors og spilar með uppeldisfélaginu Fram hér á landi. Hann hefur verið öflugur í vinstra horninu á yfirstandandi Evrópumóti en þar hefur Ísland ekki tapað leik til þessa. Viktor Gísli missir ekki af leik með liðinu á mótinu. „Þetta er búinn að vera draumur hans í mjög langan tíma,“ segir Viktor í samtali við Vísi um bróður sinn. „Hann var ekki valinn í fyrstu úrtökin, það var erfitt fyrir hann en hann er búinn að vera helvíti duglegur síðustu tvö til þrjú árin. Ég er mjög stoltur af honum. Það er búið að ganga vel hjá honum líka og gaman að sjá alla vinnuna sem hann hefur lagt í þetta skila sér í þessu. Þetta er hörku lið.“ Foreldrar drengjanna eru úti að fylgja íslenska landsliðinu eftir. „Þau segja að það sé geggjuð stemning í kringum liðið. Gaman að sjá eitt af okkar yngri landsliðum ganga svona vel. Það hefur kannski liðið smá tími frá því að það var eitthvað lið sem var að gera alvöru hluti. Að sjá hann vera partur af svona góðu liði er helvíti gaman.“ Bestu minningarnar Sjálfur þekkir Viktor Gísli það að vera hluti af góðu yngra landsliði Íslands hann var hluti af silfurliðinu árið 2018. „Þetta eru bestu minningarnar sem ég á úr handboltanum. Ég sagði það við Alex að njóta þess að vera þessum mótum. Þetta eru lang skemmtilegustu mótin sem þú munt nokkurn tímann taka þátt í. Félagslega séð og upp á minningarnar að gera. Þetta eru skemmtilegustu minningarnar sem ég á frá mínum handboltaferli. Að spila á þessum mótum með þessum gæjum. Margir af þeim eru mínir bestu vinir í dag.“ Ísland og Þýskaland mætast klukkan þrjú í dag í átta liða úrslitum Evrópumóts undir átján ára landsliða. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira