Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2026 23:17 Stuðningsmenn enska landsliðsins eru margir skrautlegir og líka sniðugir eins og Sean Carrington. EPA/SERGEY DOLZHENKO/BBC/Sean Carrington Englendingar hafa verið að bíða eftir að fótboltinn komi heim í sextíu ár eða síðan enska landsliðið varð heimsmeistari sumarið 1966. Sumir stuðningsmenn héldu að nú væri loksins komið á HM í sumar og sumir voru aðeins of fljótir á sér.
Eitt besta dæmið um slíkt er hinn harði stuðningsmaður Sean sem ræddi málin við breska ríkisútvarpið. Sean hafði áður vakið athygli fyrir að fá sér veglegt húðflúr þar sem stóð að England væri heimsmeistari í fótbolta 2026. Enska landsliðið tapaði á grátlegan hátt í undanúrslitaleiknum á móti Argentínu en vann á endanum Frakka í leiknum um þriðja sætið. En hvað varð um húðflúrið? Blaðamaður breska ríkisútvarpsins komst að því hvað Sean ákvað að gera. Það er vel hægt að segja að hann hafi notað svarta breska húmorinn til að leysa málið. „Það fer meira í taugarnar á mér að England hafi ekki unnið heimsmeistaramótið en að vera með þetta húðflúr á fætinum,“ sagði þessi 36 ára gamli maður í viðtali við BBC og bætti við: „Það truflar mig ekki. Þetta er bara húðflúr.“ View this post on Instagram A post shared by La Gazzetta dello Sport (@gazzettadellosport) Sean sagði líka að hann sæi ekki eftir að hafa fengið sér upprunalega húðflúrið og hann „hefði ekki gert neitt öðruvísi“. En hvað gerði kappinn? Jú, undir húðflúrið þar sem stóð „England heimsmeistari 2026“ lét hann bæta „Just joking“ eða „Bara að grínast“. Jamie Taylor, framkvæmdastjóri húðflúrsstofunnar, sagði að húðflúrið hefði venjulega kostað um hundrað pund, en þau hefðu ákveðið að gera leiðréttinguna ókeypis. „Hann er bara glaður og skemmtilegur strákur og húðflúrið var eitthvað sem hann langaði virkilega að gera svo við hjálpuðum honum bara að láta það rætast. Við vorum öll í þeirri trú að við myndum vinna svo við hugsuðum ekki raunverulega um hvað myndi gerast ef það færi á versta veg,“ sagði Taylor. View this post on Instagram A post shared by The Brit Spot (@thebritspot)
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fleiri fréttir Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Sjá meira