Írönsku fótboltakonurnar fengu ástralskan ríkisborgararétt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 22:33 Mál írönsku fótboltakvennanna vakti mikla athygli í mars en aðeins tvær þeirra urðu að lokum eftir í Ástralíu. Getty/Albert Perez Tvær íranskar fótboltakonur sem stungu af þegar íranska landsliðið keppti á Asíumeistaramótinu í Ástralíu í mars hafa nú fengið ástralskan ríkisborgararétt.
Fatemeh Pasandideh og Atefeh Ramezanisadeh voru í hópi sjö leikmanna sem báðu um vernd í Ástralíu eftir að hafa neitað að syngja íranska þjóðsönginn í leik á Asíumeistaramótinu. Þetta gerðist skömmu eftir að óeirðirnar í Íran brutust út. Leikmennirnir voru stimplaðir svikarar heima fyrir í Íran og því ákváðu tvær þeirra að ferðast ekki heim með restinni af liðinu. Á miðvikudaginn fengu þær báðar ríkisborgararétt í Ástralíu. Tony Burke innanríkisráðherra sá um afhendinguna. Two Iranian women footballers granted Australian citizenship after anthem protest——Two former Iranian women footballers said Thursday they were “proud” after receiving Australian citizenship.Fatemeh Pasandideh and Atefeh Ramezanisadeh were among seven members of Iran’s… pic.twitter.com/mC0tFdHvLF— The Cradle (@TheCradleMedia) August 6, 2026 „Þetta er sannarlega sérstakur dagur fyrir mig. Ég er ótrúlega glöð yfir því að verða Ástrali,“ sagði Ramezanisadeh. Í fyrstu höfðu sjö manns, sex leikmenn og einn úr starfsliðinu, ákveðið að sækja um hæli í Ástralíu en síðan skiptu fimm þeirra um skoðun og fóru með liðinu til Íran. Aðeins Pasandideh og Ramezanisadeh urðu eftir. Mannréttindasamtök hafa sakað stjórnvöld í Íran um að þrýsta á þær að skipta um skoðun með hótunum gegn ættingjum þeirra í Íran. Írönsk yfirvöld hafa aftur á móti sakað Ástralíu um að þrýsta á fótboltakonurnar að gerast liðhlaupar. Í lok mars ákvað Ástralía að setja á tímabundið komubann fyrir Írani vegna hættu á að þeir myndu ekki snúa aftur heim. "I feel proud and deeply grateful to become an Australian citizen," footballer Atefeh Ramezanisadeh saidRead in full: https://t.co/bLWS3wRdoX pic.twitter.com/xxaMQMCXUT— The Independent (@Independent) August 6, 2026
Íran Mótmælaalda í Íran Ástralía Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira