Misjafnt gengi hjá Íslendingaliðunum í Evrópu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 20:57 Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Twente fagna hér sigrinum góða í leikslok í kvöld. Getty/MTB Hollenska félagið Twente og danska félagið FCK Kaupmannahöfn eru bæði í frábærum málum í sínum einvígum í Sambandsdeildinni en það gekk ekki jafnvel hjá nokkrum öðrum Íslendingaliðunum á þessu Evrópukvöldi.
Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður í stöðunni 4-0 á 65. mínútu í 6-0 heimasigri Twente á Dunajska Streda í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar. Viktor Bjarki Daðason var frá vegna meiðsla og Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum þegar FC Kaupmannahöfn vann 3-0 útisigur á ungverska félaginu Debrecen í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar. Gunnar Olsen kom inn á sem varamaður í uppbótartímanum. Gabriel Pereira, Robert og Andreas Cornelius skoruðu mörkin. Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts eru í vonlausum málum eftir 6-1 tap á móti Benfica í Portúgal í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Evrópudeildarinnar en Tómas sat allan tímann á bekknum. Tom Renaud minnkaði muninn í 4-1 á 72. mínútu eftir að Rafa Silva, Tomás Araújo, Vangelis Pavlidis og Gianluca Prestianni höfðu komið portúgalska liðinu í 4-0. Jhon Durán og Andreas Schjelderup bættu við mörkum og gerðu út um einvígið. Elías Rafn Ólafsson hélt hreinu þegar Midtjylland vann 2-0 útisigur á írska félaginu Bohemian F.C. í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar. Mörkin komu á 29. og 77. mínútu. Elías Rafn varði tvisvar frá Írunum í góðum færum. Gísli Gottskálk Þórðarson var ekki með Lech Poznan í 1-0 heimasigri á KÍ Klaksvík í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Evrópudeildarinnar. Kolbeinn Þórðarson og Hjörtur Hermannsson voru báðir í byrjunarliðinu þegar IFK Gautaborg tapaði 1-0 á heimavelli á móti belgíska félaginu Gent í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar. Báðir voru teknir af velli, Kolbeinn á 78. mínútu en Hjörtur á 83. mínútu. Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ úr Runavík töpuðu 2-0 á útivelli á móti svissneska liðinu Lugano í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar.
Sambandsdeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Sjá meira