Körfubolti

Berg­lind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Berglind Katla Hlynsdóttir á ferðinni með boltann í sigrinum á Noregi í kvöld.
Berglind Katla Hlynsdóttir á ferðinni með boltann í sigrinum á Noregi í kvöld. FIBA Basketball

Íslensku sextán ára landsliðin byrjuðu vel í B-deild Evrópukeppninnar í körfubolta í dag því stelpurnar burstuðu Norðmenn og strákarnir unnu Úkraínu. Þetta voru fyrstu leikirnir hjá báðum liðum.

Berglind Katla Hlynsdóttir fór á kostum í 21 stigs sigri á Norðmönnum, 80-69, en hún var með 33 stig, 11 fráköst, 7 stolna bolta, 4 stoðsendingar og 3 varin skot á 33 mínútum í leiknum. Hún spilaði einnig með tuttugu ára liðinu í A-deildinni fyrr í sumar.

Eva Ingibjörg Óladóttir skoraði 11 stig, tók 6 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í sannfærandi sigri, Björk Karlsdóttir skoraði 10 stig og Oddný Hulda Einarsdóttir var með átta stig. Rún Sveinbjarnardóttir skoraði kannski bara 5 stig en var með 11 fráköst, 7 stolna bolta og 4 stoðsendingar.

Atli Freyr Haraldsson Katrínarson skoraði 20 stig og tók 9 fráköst í 85-77 sigri íslensku sextán ára strákanna á Úkraínu. Davíð Breki Antonsson var með 18 stig og 5 stoðsendingar, Kormákur Nói Jack skoraði 17 stig og tók 8 fráköst og Hlynur Ingi Finnsson bætti við 15 stigum og 5 stoðsendingum. Jón Breki Sigurðarson var síðan með 7 stig og 5 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×