Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Agnar Már Másson skrifar 7. ágúst 2026 19:02 Hildur Ragnars er forstjóri Þjóðskrár Íslands. Hún segir að sex til sjö hundruð manns hafi sótt um að komast á kjörskrá á þessu ári en þeir munu ekki komast á skrá fyrr en 1. desember. Vísir/Lýður Valberg Um sex til sjö hundruð Íslendingar sem búið hafa lengi erlendis munu ekki geta greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þrátt fyrir að hafa óskað eftir því að komast aftur á kjörskrá. Ný kjörskrá tekur gildi 1. desember ár hvert. Þeirri dagsetningu var hnikað fyrir síðustu þingkosningar en ekki í þetta sinn.
Greint var frá því á Vísi í gær að Íslendingur sem hafði búið lengi í Danmörku hefði óskað eftir því við Þjóðskrá að vera settur á kjörskrá, þar sem hann hafði verið tekinn af kjörskrá þar sem hann hafði búið erlendis lengur en 16 ár samfleytt. Þjóðskrá varð við þeirri beiðni en tilkynnti honum að hann yrði settur á kjörskrá hinn 1. desember og því myndi hann ekki ná að kjósa í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hið sama á við um sex til sjö hundruð Íslendinga sem sótt hafa um að vera settir aftur á kjörskrá í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að sögn Hildar Ragnars, forstjóra Þjóðskrár. Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og átt lögheimili á Íslandi, á samkvæmt lögum kosningarrétt í sextán ár frá því að hann flytur lögheimili af Íslandi. Svo getur hann sótt um að vera tekinn aftur á kjörskrá í fjögur ár í senn. En kjörskrá tekur, sem fyrr segir, gildi frá 1. desember ár hvert, sem þýðir að þeir sem vilja láta setja sig aftur á kjörskrá fyrir 29. ágúst hefðu þurft að sækja um það fyrir desember í fyrra. „Þeir sem sækja um á þessu ári og vilja komast inn á kjörskrá komast inn á kjörskrá 1. desember 2026 og hafa þar með ekki kjörgengi í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust,“ segir Hildur. „Okkur telst að þetta sé 2 prósent af þeim sem hafa búið erlendis lengur en sextán ár og uppfylla öll skilyrðin. Það eru um það bil þrjátíu þúsund manns alls.“ Alls eru um 273 þúsund manns á kjörskrá fyrir atkvæðagreiðsluna í lok ágúst. Þegar boðað var til þingkosninga í skyndi haustið 2024 setti Alþingi bráðabirgðalög til að hnika þessum fresti um einn mánuð til að koma til móts við Íslendinga erlendis. Það var aftur á móti ekki gert í þetta sinn, þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ekki kynnt dagsetningu atkvæðagreiðslunnar fyrr en í mars. Bryndís Haraldsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að nefndin hafi metið að ekki væri tilefni til þess að setja bráðabirgðalög, enda hafi tillaga um slíkt borist skömmu fyrir þinglok og það ekki verið rætt við meðferð málsins í þingsal. „Sú hugmynd kom ekki í tengslum við umfjöllun um sjálft þingmálið. Hún kom bara skömmu fyrir þinglok, þá gafst ekki tími til þess. Það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar að afgreiða þetta svona stuttum tíma innan þings og hafa atkvæðagreiðsluna meðan þing er ekki að störfum. Þannig að því miður að þessu sinni náðist ekki að gera þetta fyrir þinglok,“ segir Bryndís.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingiskosningar 2024 Íslendingar erlendis Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira