Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: „Fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 08:04 Búið er að bæta við merkingum í brottfararslanum til að hafa stjórn á röðinni. Aðsend Töluverð röð er í öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli samkvæmt ábendingum sem borist hafa fréttastofu. Fréttastofa náði tali af einum farþega sem var á hlaupum í gegnum flugvöllinn eftir klukkustundar bið. Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn. Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is. Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni. Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð. „Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee. „Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“ Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30 en fréttastofa talaði við hana klukkan átta. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu. Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn. „Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“ Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti. Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu. Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út. Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis er hægt að greina meiri vökva. Keflavíkurflugvöllur Flug Mest lesið Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Fleiri fréttir Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Sjá meira
Á myndum má sjá að röðin í öryggisleitina teygir sig niður stigann á fyrstu hæðina og í gegnum brottfararsalinn að útganginum þar sem farþegarnir koma alla jafna inn. Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is. Rakhee Bharj, sem er á leiðinni til London en býr á Íslandi, er meðal þeirra sem þurftu að bíða í röðinni. Í samtali við fréttastofu segir Rakhee að hún hafi beðið í klukkustund eftir því að komast að öryggisleitinni og var akkúrat komin fremst í röðina þegar fréttastofa náði tali af henni. Það tók hana fjörutíu mínútur að komast að stiganum upp á aðra hæð. „Þetta tekur venjulega hálftíma, ég er vön því að strunsa bara beint í gegn,“ segir Rakhee. „Stemningin er smá skrýtin, fólk er annaðhvort mjög stressað eða mjög rólegt.“ Hún óttast að missa af fluginu sínu, sem á að fara klukkan 8:30 en fréttastofa talaði við hana klukkan átta. Þá átti hún enn þá eftir að fara í gegnum landamæraeftirlitið. Þegar símtalinu lauk var Rakhee að hlaupa í gegnum flugvöllinn að reyna að komast að eftirlitinu. Hún hljómaði samt sem áður bjartsýn. „Þetta ætti að vera í lagi, öryggisvörðurinn sagði að þar væri um fimmtán mínútna bið.“ Töluvert hefur verið fjallað um raðir á flugvellinum undanfarnar vikur en það á við um öryggisleit þeirra sem lenda á Keflavíkurflugvelli í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti. Ekki bætti úr skák að áður en Rakhee fór í röðina biluðu farangursbeltin og tók um fimm til tíu mínútur að laga þau. Samkvæmt heimasíðu Isavia eiga 28 flugvélar að yfirgefa flugvöllinn á milli klukkan átta og tíu. Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallaþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli, sagði í viðtali í Reykjavík að til stæði að innleiða nýjan öryggisleitarbúnað á flugvellinum. Heildarlausnin hefur verið boðin út. Um er að ræða þróaðan búnað svo til dæmis er hægt að greina meiri vökva.
Ert þú að bíða í röðinni? Við tökum á móti frásögnum og myndum í fréttaskoti eða á ritstjorn@visir.is.
Keflavíkurflugvöllur Flug Mest lesið Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Fleiri fréttir Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Sjá meira