Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2026 09:00 Roger Craig var frábær í glæstu liði San Francisco 49ers á níunda áratugnum. Nick Cammett/Getty Images Ruðningskappinn fyrrverandi Roger Craig vakti athygli á áhrifum höfuðhögga í NFL-deildinni í ræðu vegna inntöku hans í frægðarhöll deildarinnar. Hann greindi frá greiningu sinni á heilabilun og kennir höfuðhöggum um.
Craig var hlaupari (e. running back) fyrir San Francisco 49ers um margra ára skeið en hann var tekinn inn í frægðarhöll ameríska fótboltans í dag. Í ræðu sinni við hátíðarhöldin greindi hann frá því að hann hefði greinst með vitglöp, 66 ára að aldri, og að læknar rektu það til heilahristings á leikmannaferlinum. „Tveir hlutir geta verið sannir,“ sagði Craig. „Fótboltinn gaf mér tækifæri umfram allt sem ég gat ímyndað mér. Hann hjálpaði til við að móta þann mann sem ég varð. Á sama tíma vitum við meira í dag um heilsu heilans heldur en þegar ég spilaði, og ég vona að það að ég deili sögu minni hvetji fólk til að huga að heilsu sinni og leita sér hjálpar þegar það óttast að allt sé ekki með felldu.“ Craig var lykilmaður í glæstu liði San Francisco 49ers sem raðaði inn titlum á níunda áratugnum og vann þrjár Ofurskálar. Þar voru með honum Joe Montana, Jerry Rice og Ronnie Lott á meðal annarra. Craig varð árið 1985 fyrsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að bæði hlaupa og grípa fyrir meira en þúsund stikum. Hann var valinn sóknarleikmaður ársins í deildinni árið 1988. Craig sagði að tilgangur hans með því að deila greiningu sinni væri að hjálpa öðrum sem gætu verið í svipaðri stöðu. „Breytingarnar komu smám saman,“ sagði hann. „Í fyrstu var auðvelt að afgreiða þær sem eðlilega öldrun. Með tímanum tók fjölskylda mín eftir því líka. Að lokum leiddi það til þess að við leituðum svara hjá lækninum mínum.“ Umræðan ekki ný af nálinni NFL hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin ár vegna slakra viðbragða við höfuðmeiðslum leikmanna. Nígerísk-bandaríski læknirinn Bennet Omalu setti hugtakið CTE fram í grein árið 2005 eftir að hafa rannsakað fyrrum NFL-leikmanninn Mike Webster, sem lést árið 2002 eftir að hafa hagað sér óvenjulega um nokkurt skeið áður en hann svipti sig lífi. Fjölmargir leikmenn í NFL hafa sýnt einkenni CTE eftir að ferli þeirra lauk, sem hvað helst sýnir sig í snemmbúnum heilabilun, ofbeldishneigðri hegðun og þunglyndi. Árið 2015 féllst deildin á að greiða einn milljarð bandaríkjadala í bótagreiðslur til að leysa þúsundir málsókna fyrrum leikmanna sem þjáðust af tauga- eða heilaskaða.
NFL Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Sjá meira