Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 07:00 Jamal Musiala átti að vera á leið til tyrkneska félagsins Galatasaray en ekkert var til í því. Getty/Stefan Matzke Tyrkneski fótboltafréttamaðurinn Burhan Can Terzi var handtekinn eftir að hafa skrifað frétt um að stórstjarna væri á leiðinni til Galatasaray.
Ekkert reyndist hins vegar vera til í því að þýski landsliðsmaðurinn Jamal Musiala hjá Bayern München væri á leið til tyrkneska félagsins. Tyrkneskir fótboltaáhugamenn eru afar blóðheitir og þetta eru viðkvæmir tímar þegar margir leikmenn eru orðaðir við lið þeirra í aðdraganda tímabilsins. Nú virðist einn fréttamannanna sem skrifa um stórlið Galatasaray hafa lagt saman tvo og tvo og fengið út fimm. Þessi falsfrétt hafði líka afleiðingar fyrir fréttamanninn. View this post on Instagram A post shared by Oh My Goal (@ohmygoal) Can Terzi var handtekinn að fyrirskipun saksóknaraembættisins í Bakırköy vegna ákæru um að „dreifa villandi upplýsingum opinberlega“ eftir fréttaflutning hans af því að Jamal Musiala væri á leið til Galatasaray. Rannsókn var hafin á hendur Terzi eftir að Galatasaray sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagaskiptafréttunum hans var vísað til föðurhúsanna. Galatasaray neitaði meira að segja fullyrðingunni opinberlega í tvígang. Terzi var síðar sleppt sama dag og hefur hann gefið út yfirlýsingu þar sem hann útskýrir hvaðan hann fékk fréttirnar. Heimildarmaður hans, Hazar Büyüka, skýrði síðar frá því á X að hann hefði komið upplýsingum um félagaskiptin til Terzi en misst sig í því hversu afdráttarlausar þær voru. „Undir áhrifum frá fréttum sem áður höfðu komið fram opinberlega, trúði ég því í einlægni að félagaskiptin gætu átt sér stað. Þegar ég kom þessari skoðun á framfæri missti ég mig um stund og setti fram ákveðin atriði – upplýsingum sem ég hafði ekki persónulega staðfest að væru réttar – með of afdráttarlausum hætti. Það var ekki ætlun mín að villa vísvitandi um fyrir neinum eða dreifa upplýsingum sem ég vissi að væru í andstöðu við sannleikann,“ skrifaði Büyüka. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Tyrkneski boltinn Tyrkland Fjölmiðlar Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Bjarka skora gegn Betis og fagna að hætti Cunha „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Sjá meira