Brann leggur inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2026 08:01 Kristall Máni Ingason og félagar í Brann eru nálægt því að komast í Sambandsdeild Evrópu. getty/Alex Nicodim Norska úrvalsdeildarliðið Brann hefur sent inn formlega kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall Máni Ingason fékk í Evrópuleik gegn Apollon Limassol í gær.
Brann tryggði sig inn í umspil um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu með 2-4 sigri á Apollon Limasol á Kýpur í gær. Kristall kom mikið við sögu í leiknum. Hann kom Brann yfir á 16. mínútu og þegar tvær mínútur voru eftir af framlengingu var hann rekinn af velli eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. Brann-menn voru afar ósáttir við brottvísun Kristals. Dómarinn gaf honum fyrirmæli um að yfirgefa völlinn eftir að hann lá í grasinu. En þegar hann varð ekki við þeirri bón fékk Kristall sitt annað gula spjald og þar með rautt. „Ég skil þetta ekki alveg. Hann fékk enga hjálp úti á vellinum og þá á hann ekki að fara af velli. Ég skil ekki af hverju dómarinn sendi hann af velli,“ sagði Eirik Horneland, þjálfari Brann, eftir leikinn í gær. Horneland sagði að Brann myndi kvarta formlega vegna brottvísun Kristals. „Við ræddum þetta við dómarann á eftir og munum leggja inn kvörtun vegna þessa því við skiljum ekki alveg reglurnar í þessu tilfelli,“ sagði Horneland. „Hann fékk rautt spjald af því að dómarinn vildi fá hann út af en við teljum að hann hefði átt að vera á vellinum. Við botnuðum lítið í þessu.“ Íþróttastjóri Brann, Per-Ove Ludvigsen, staðfesti síðar að félagið hefði lagt inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk. Hann segir að Brann-liðar hafi ekki fengið nógu góð svör frá dómarateyminu eftir leik. „Mjög mismunandi. Eitt svar frá fjórða dómara og annað frá aðaldómara. Þá verður þetta erfitt. Við kvörtum yfir því að hann eigi ekki að fara út af í eina mínútu svo lengi sem hann fær ekki hjálp frá sjúkraþjálfara eða lækni,“ sagði Ludvigsen. Í umspilinu um sæti í Sambandsdeildinni mætir Brann sigurvegaranum úr einvígi PAOK og Anderlecht.
Norski boltinn Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Sjá meira