Óvenjuleg leið á toppinn Valur Páll Eiríksson skrifar 12. ágúst 2026 09:32 Pep Chavarría er nýjasti leikmaður Chelsea. Mynd/Chelsea Pep Chavarría er nýjasti leikmaður Chelsea á Englandi og mun fylla skað Marc Cucurella í vinstri bakvarðarstöðu liðsins. Hann fór óvenjulega leið að því að komast í bestu deild heims.
Chavarría var keyptur í dag á rúmlega 16 milljónir punda frá Rayo Vallecano á Spáni. Hann fyllir skarð Marc Cucurella og veitir Jarrel Hato samkeppni. Hann er 28 ára gamall vinstri bakvörður sem hefur ekki baðað sig í stjörnuljóma á ferlinum. Chavarría spilaði ekki fyrsta leik sinn í La Liga fyrr en 24 ára gamall, fyrir fjórum árum síðan. Eftir að hafa spilað fyrir Olot í spænsku neðri deildunum varð bakvörðurinn fyrst atvinnumaður er hann samdi við Real Zaragoza í næst efstu deild árið 2020. Hann fór þaðan til Rayo Vallecano til að leika í efstu deild árið 2022. Rayo kom á óvart, þrátt fyrir lítið fjármagn, og stóð uppi í hárinu og sterkum liðum í efstu deild Spánar. Hann varð að einum bestu bakvörðum deildarinnar og átti til að mynda stórleik gegn Real Madrid, undir stjórn Xabi Alonso, á síðustu leiktíð. Nýr þjálfari hans, Alonso á stóran þátt í því að Chavarría er orðinn leikmaður enska liðsins. „Þetta er draumur fyrir mig þar sem Chelsea er eitt stærsta félag í heimi. Þetta er stórt tækifæri en ég er undirbúinn og mun vinna hörðum höndum að því að hjálpa liðinu að ná árangri,“ sagði Chavarría við undirskriftina í Lundúnum og bætti við: „Ég talaði við Xabi. Ég er hér þökk sé Xabi. Fyrir mér er hann einn besti þjálfarinn í fótboltanum í dag.“ Chavarría bætist við stóran hóp leikmanna sem Chelsea hefur fest kaup á í sumar. Þegar hefur liðið fengið hægri bakvörðinn Marco Palestra frá Atalanta, framherjann Emmanuel Emegha, kantmanninn Geovany Quenda, sóknar tengiliðinn Morgan Rogers, miðvörðinn Maxance Lacroix, miðjumennina Jordan Henderson og Valentín Barco og framherjann Danny Welbeck. Chelsea er með rúmlega 40 leikmenn á skrá í aðalliðshóp sínum og þarf því að skera niður um 15 leikmenn eða svo, þar sem aðeins 25 leikmenn mega vera í hópi skráðum til leiks í ensku úrvalsdeildinni. Trevoh Chalobah er síðastur til að fara er hann samdi við Como í vikunni, en þegar hafði félagið selt Marc Cucurella, Tyrique George og Andrey Santos.
Chelsea FC Enski boltinn Mest lesið Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira