Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 19:31 Pep Chavarria sést hér kominn í Chelsea-búninginn. Chelsea Football Club Ein stærsta breytingin eftir að Xabi Alonso settist í stjórastólinn á Brúnni virðist vera sú að hann ætlar að sækja meiri reynslu í liðið.
Chelsea hefur nú gengið frá kaupum á Pep Chavarría frá Rayo Vallecano og er vinstri bakvörðurinn níundi nýi leikmaðurinn sem bætist í aðalliðshópinn á Stamford Bridge í sumar. Þessi 28 ára leikmaður, sem hefur skrifað undir fimm ára samning, mun veita Jorrel Hato samkeppni eftir að Marc Cucurella fór til Real Madrid fyrr í sumar. Welcome to Chelsea, Pep. ☕️ pic.twitter.com/oq1KPncIzs— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 12, 2026 Koma Chavarría er enn eitt merki um breytta stefnu Chelsea í leikmannakaupum, þar sem félagið leitast við að bæta meiri reynslu við hópinn, þrátt fyrir að hafa áður aðallega einbeitt sér að því að safna ungum leikmönnum. Í sumar hafa þeir samið við tvo leikmenn yfir þrítugu, þá Danny Welbeck og Jordan Henderson. Chavarría gegndi lykilhlutverki á glæsilegu tímabili Rayo Vallecano 2025–26, þar sem liðið komst í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar og endaði í áttunda sæti í LaLiga. Spánverjinn spilaði 44 leiki í öllum keppnum fyrir Rayo Vallecano á síðasta tímabili og var í fjögur ár hjá félaginu. Pep's first interview. 🫡— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 12, 2026 „Ég er svo spenntur fyrir því að byrja. Þetta er draumur fyrir mig þar sem Chelsea er eitt af stærstu félögum heims. Þetta er stórt tækifæri en ég er undirbúinn og mun leggja hart að mér til að hjálpa liðinu að ná árangri,“ sagði Chavarría við fjölmiðla félagsins. „Það er margt fólk sem hefur hjálpað mér að komast á þennan stað og ég verð að þakka fjölskyldu minni. Hún hefur alltaf stutt mig og þessi dagur er aðeins mögulegur vegna hennar,“ sagði Chavarria. Chelsea hefur enn og aftur verið afar umsvifamikið á leikmannamarkaðnum í sumar og hefur einnig keypt Morgan Rogers fyrir metfé fyrir breskan leikmann, ásamt Maxence Lacroix, Marco Palestra, Valentín Barco og fleirum. Þeir hafa einnig kvatt Cucurella, Andrey Santos, Trevoh Chalobah og fleiri, á meðan Alejandro Garnacho hefur farið til Aston Villa á láni.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira