Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar 14. ágúst 2026 08:31 Ein af mínum fyrstu pólitísku minningum er frá árunum eftir hrun, þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sótti um aðild að Evrópusambandinu. Þá var ég að elta minn fyrsta áhuga á samfélagsmálum. Í meira en áratug hefur þessi umræða snúist í hringi. Ísland stendur í þeirri merku sérstöðu að vera eina Norðurlandið sem hefur aldrei fengið að sjá fullbúinn aðildarsamning. Við höfum aldrei fengið svör á borðið. Þegar Alþingi samþykkti að sækja um aðild sumarið 2009 var ferlið gagnrýnt fyrir skort á lýðræðislegu umboði - farið var í viðræður án þess að fólk fengi neinu um það að ráða. En þegar ný ríkisstjórn tók við og lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald ferlisins í stjórnarsáttmála sínum, gerðist hið gagnstæða: umsóknin var dregin til baka með bréfi ráðherra til ESB án þess að Alþingi eða þjóðin fengi neinu um það að ráða. Afleiðingin? Málinu var ekki lokið. Því var einfaldlega frestað. Síðan þá hefur umræðan staðnað í skotgrafahernaði þar sem meginmarkmiðið virðist vera að koma í veg fyrir að þjóðin fái upplýsta niðurstöðu. Þreyta, skotgrafahernaður og upphrópanir Mér hefur alltaf þótt sjálfsagt að tjá mig um samfélagsmál og taka þátt í uppbyggilegri umræðu. En umræðan fyrir komandi kosningar er orðin þreytt og eitruð. Í stað þess að ræða staðreyndir af yfirvegun mætast fylkingar af hörku. Upphrópanir og stympingar á samfélagsmiðlum eru notaðar til að stimpla fólk óháð afstöðu: þau sem vilja einfaldlega fá svör og halda öllum möguleikum opnum eru kölluð „föðurlandssvikarar“, á meðan þau sem ætla að segja nei eru afgreidd sem „stuðningsmenn auðvaldsins“. Hvorugt stuðlar að uppbyggilegu samtali. Slíkur hræðsluáróður fælir fólk frá því að kynna sér málið og drepur alla málefnalega rýni. Fullyrðingar af gerðinni „svona verður þetta“ - eins og viðkomandi hafi þegar lesið og dæmt samninginn - standast hreinlega ekki. Þær falla á tveimur meginforsendum: Enginn samningur er til: Það er ómögulegt að fullyrða um lokaniðurstöðu þegar enginn skriflegur texti liggur fyrir. Sérlausnir og sjálfstæði: Evrópusambandið er ekki steypt í eitt mót. Hvert ríki semur við ESB á eigin forsendum, heldur sínu sjálfstæði og rekur sinn búskap á eigin ábyrgð. Sögulegar úttektir sýna að ESB hefur ítrekað samið um raunverulegar sérlausnir sem taka mið af sérstöðu hvers aðildarríkis fyrir sig. Við vitum ekkert um lokaniðurstöðuna fyrr en reynt hefur verið á viðræðurnar. Efnahagslegur stöðugleiki og betri lífskjör Þau sem líta til Evrópusambandsins gera það flest í von um betri lífskjör. Þar er oft vísað í: Lægri og stöðugri vextir - svo það verði léttara að borga af lánunum og meira eftir til að lifa. Stöðugri gjaldmiðill - svo peningarnir okkar haldi raunverulegu verðgildi sínu til framtíðar. Aukin samkeppni og lægra vöruverð - svo hver matarferð í búðina kosti minna og meira verði eftir í lok mánaðar. Greiðari markaðsaðgangur - sem opnar dyr fyrir íslenskt atvinnulíf og fjölgar tækifærum. Þetta gerist auðvitað ekki á einni nóttu. En sérfræðingar og hagfræðingar hafa í vaxandi mæli bent á að ávinningur af traustu myntsamstarfi hafi jafnan verið vanmetinn. Ef stærri þjóðir sjá skýr tækifæri í því að minnka viðskiptakostnað, hvað má þá segja um 400 þúsund manna samfélag sem heldur úti minnsta sjálfstæða gjaldmiðli í heimi? Í sögulegu samhengi hefur reynslan sýnt að gengissveiflur, hár vaxtakostnaður og verðbólga hafa fylgt okkur gegnum áratugi - óháð því hverjir stjórna landinu hverju sinni. Þegar talað er um að „sveigjanleiki krónunnar“ sé styrkleiki í kreppum þýðir það í framkvæmd aðeins eitt: efnahagslega höggið er fært milliliðalaust yfir á heimilin. Tugþúsundir fjölskyldna hafa ítrekað þurft að bera þær byrðar í formi skertra lífskjara og stökkbreyttra afborgana. Þetta snýst ekki bara um stöðuna í dag, heldur um framtíðina - ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði og vill einfaldlega búa við sama efnahagslega öryggi og þekkist í nágrannalöndum okkar. Besta leiðin til að fá svör er að sjá samninginn Atkvæðagreiðslan snýst ekki um að samþykkja blindandi aðild eða ganga í ESB í dag. Hún snýst eingöngu um að hefja ferlið til að ná fram samningi og fá skýrleika og svör á borðið. Einhverjir óttast lélega niðurstöðu. En ég hef fulla trú á að Ísland myndi senda okkar fremstu og færustu sérfræðinga til að sitja við samningaborðið - fólk sem mun gæta hagsmuna landsins, auðlinda og samfélags af fullri hörku. Valið er í raun einfalt: Ef við kjósum „Já“: Við fáum tilbúinn samning á borðið. Þegar hann liggur fyrir getur þjóðin metið kosti og galla í seinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef samningurinn er óaðgengilegur eða vondur fyrir okkar hagsmuni, segjum við einfaldlega „Nei“ og fellum hann. Ef við kjósum „Nei“ núna: Við lokum á svörin. Umræðan mun halda áfram næsta áratuginn - drifin áfram af getgátum, hræðslu og pólitískum skotgrafahernaði. Að kjósa um viðræður snýst ekki um blindandi trú, heldur um virðingu fyrir lýðræðislegu ferli. Hættum að giska, færum umræðuna á hærra plan og fáum staðreyndirnar á borðið - svo þjóðin geti sjálf tekið upplýsta ákvörðun. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar