Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 15:32 Í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst hefur ítrekað verið haldið fram að hugmyndin um tvær þjóðaratkvæðagreiðslur í Evrópusambandsmálinu eigi rætur að rekja til Sjálfstæðisflokksins. Sú söguskoðun er of einföld. Raunar skiptir máli hvað átt er við þegar sagt er að einhver „eigi hugmyndina“. Eitt er að varpa henni fram, annað að ræða hana sem mögulega leið, þriðja að gera hana að stefnu stjórnmálaflokks og fjórða að flytja hana sem formlegt þingmál. Það skiptir ekki síður máli í hvaða tilgangi leiðin er lögð til. Fyrri þjóðaratkvæðagreiðsla getur verið leið til að opna aðildarferlið en einnig varnagli gegn því að ríkisstjórn og þingmeirihluti hefji viðræður án sérstaks samþykkis þjóðarinnar. Samtímaheimildir sýna að hugmyndin er eldri en umræðan innan Sjálfstæðisflokksins árið 2008 og að þeir sem ræddu hana gengu út frá mjög ólíkum forsendum. Fyrsta og síðasta orðið árið 2002 Þann 22. apríl 2002 sagði Björgvin G. Sigurðsson, þá framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar í DV að þjóðin ætti að hafa „bæði fyrsta og síðasta orðið“ í Evrópusambandsmálinu. Fyrst ætti að greiða atkvæði um hvort Ísland skyldi sækja um aðild. Kæmi til umsóknar og samningaviðræðna ætti síðan að leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina. Þarna birtist í meginatriðum sama tveggja þrepa fyrirkomulag og síðar var nefnt tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla, þ.e. fyrst um heimild til að hefja aðildarferlið og síðan um niðurstöðu þess. Það var sex árum áður en sú umræða hófst sem nú er gjarnan kennd við Sjálfstæðisflokkinn. Vegvísir Björns og túlkun Össurar Í mars 2008 ræddi Björn Bjarnason, þá dómsmálaráðherra, um að skorta „vegvísi“ í Evrópumálum. Meðal þeirra álitaefna sem hann nefndi var hvort halda ætti þjóðaratkvæðagreiðslu áður en aðildarviðræður hæfust og aðra atkvæðagreiðslu um niðurstöðu þeirra. Björn setti þetta fram sem spurningar sem taka þyrfti afstöðu til, ekki sem fullmótaða tillögu. Hann tók síðar fram að fyrst þyrfti að liggja fyrir efnisleg niðurstaða ríkisstjórnar og Alþingis um að sækja ætti um aðild. Össur Skarphéðinsson gekk lengra. Hann túlkaði hugmyndina sem „leið tvöfaldrar þjóðaratkvæðagreiðslu“ og sagði: „Ég er leiðinni sammála.“ Hann hafði áður talið eina atkvæðagreiðslu um lokaniðurstöðuna nægja en vildi nú að þjóðin tæki fyrst af skarið um hvort sótt yrði um aðild. Þarna liggur meginkjarni ágreiningsins. Spurningin var ekki aðeins hvort atkvæðagreiðslurnar yrðu ein eða tvær, heldur hver ætti að taka hina pólitísku frumákvörðun: þingið eða þjóðin. Þorsteinn Pálsson taldi að ríkisstjórn og Alþingi yrðu fyrst að taka efnislega afstöðu til þess að hefja viðræður. Niðurstaða hans var eftirminnileg: „Þjóðarvilji án þingvilja er loddaralist.“ Hann var ekki andvígur aðkomu þjóðarinnar heldur þeirri útfærslu að þjóðaratkvæðagreiðsla kæmi í stað efnislegrar ákvörðunar Alþingis. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vildi á sama tíma halda möguleikanum á þjóðaratkvæðagreiðslu opnum. Afstaða hennar til aðildarinnar sjálfrar var þó skýr: „Ég er mótfallin því að ganga í Evrópusambandið.“ Framsókn: sáttaleið og varnagli Hugmyndin tók skýrari mynd innan Framsóknarflokksins árið 2008. Flokkurinn var klofinn í Evrópumálinu. Sumir vildu hefja aðildarviðræður en aðrir voru því andvígir. Siv Friðleifsdóttir lýsti tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu síðar sem „lýðræðislegri sáttaleið“ fyrir flokk sem væri sammála um að vera ósammála. Fyrri atkvæðagreiðslan fól því ekki í sér stuðning við aðild eða aðildarviðræður. Með henni var þjóðinni ætlað að skera úr um það sem flokkurinn sjálfur var ósammála um. Þann 9. október 2008 lagði Birkir J. Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, fram þingsályktunartillögu um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Í tillögunni var gert ráð fyrir báðum atkvæðagreiðslunum. Fyrst skyldi þjóðin ákveða hvort hefja ætti aðildarviðræður. Samþykkti hún það skyldi óska eftir viðræðum og næðist samningur skyldi hann síðan borinn undir þjóðina. Að þessu leyti gekk tillagan frá 2008 lengra en þingsályktunin sem Alþingi samþykkti árið 2026. Sú ályktun tekur aðeins til atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður. Í henni er hvorki ákveðið hvað taki við ef niðurstaðan verður jákvæð né að hugsanlegur aðildarsamningur verði síðar borinn undir þjóðina. Árið 2008 var síðari þjóðaratkvæðagreiðslan þannig hluti af tillögunni sjálfri. Í þingsályktuninni frá 2026 er hún það ekki. Hvað sagði Sjálfstæðisflokkurinn? Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla var ekki stefna Sjálfstæðisflokksins árið 2008. Geir H. Haarde tók ekki undir leiðina. Árni M. Mathiesen taldi að flokkurinn gæti ekki haft forystu um slíka atkvæðagreiðslu nema hann hefði fyrst breytt stefnu sinni og komist að þeirri niðurstöðu að leggja ætti til aðild. Bjarni Benediktsson, þá formaður utanríkismálanefndar Alþingis, var enn afdráttarlausari. Væri ekki meirihluti á Alþingi fyrir umsókn yrði fyrri atkvæðagreiðslan aðeins skoðanakönnun. Hann sagðist mjög fráhverfur hugmyndinni um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu og taldi hana vandræðalega tilraun til að sætta andstæð sjónarmið innan Framsóknarflokksins. Illugi Gunnarsson tók undir meginsjónarmið hans. Þetta er sérkennileg samtímamynd af flokki sem nú er stundum sagður hafa fundið aðferðina upp. Framsókn skiptir um kúrs Á flokksþingi Framsóknarflokksins í janúar 2009 var tekin afstaða með aðildarviðræðum og því að niðurstaða þeirra yrði borin undir þjóðina. Fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan var því ekki lengur hluti af leið flokksins. Siv Friðleifsdóttir lýsti þróuninni síðar einfaldlega á Alþingi: Flokkurinn hefði áður viljað tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu en síðan „breytt um skoðun“. Það undirstrikar pólitískt hlutverk leiðarinnar árið 2008. Hún var ekki ófrávíkjanleg lýðræðisregla heldur sáttaleið og varnagli við tilteknar pólitískar aðstæður. Hver á þá hugmyndina? Sögulegar hugmyndir eiga sjaldnast einn höfund. Elsta skýra íslenska heimildin sem hér hefur verið rakin er frá Björgvini G. Sigurðssyni árið 2002. Björn Bjarnason varpaði upp möguleikanum á tveimur atkvæðagreiðslum árið 2008. Össur Skarphéðinsson nefndi hana „leið tvöfaldrar þjóðaratkvæðagreiðslu“. Framsóknarflokkurinn gerði hana síðan að formlegri pólitískri leið og þingmáli. Á sama tíma var hún hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins né samheiti við stuðning við aðild. Niðurstaðan er því einföld: Sjálfstæðisflokkurinn fann ekki upp tvöföldu þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hugmyndin var eldri, þróaðist þvert á flokka og hafði ólíka merkingu eftir því hver hélt á henni. Fyrir suma var fyrri atkvæðagreiðslan leið til að opna aðildarferlið. Fyrir aðra var hún varnagli áður en það gæti hafist. Sú saga verður ekki með réttu endurskrifuð sem uppfinning Sjálfstæðisflokksins. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar