„Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2026 21:30 Michael Carrick á hliðarlínunni í leik Manchester United og AC Milan í dag. EPA/Przemyslaw Karolczuk Michael Carrick, stjóri Manchester United, horfði upp á liðið sitt tapa 4-2 í dag á móti ítalska félaginu AC Milan sem er undir stjórn Ruben Amorim, fyrrverandi aðalþjálfara United.
Þetta var aðeins annað tap United-liðsins í sex leikjum á undirbúningstímabilinu, sem innihélt líka sigur á Atletico Madrid og 1-1 jafntefli við Evrópumeistara Paris Saint-Germain. „Í heildina hefur undirbúningstímabilið verið mjög gott og ég held að það sé margt jákvætt sem hægt er að taka úr því,“ sagði Michael Carrick við MUTV eftir leikinn. „Við erum vonsviknir með daginn í dag. Við spiluðum ekki vel í dag og það eru ástæður fyrir því. Að sumu leyti þurfum við að læra af þessu, við þurfum að bæta okkur, sumir strákanna voru að spila sínar fyrstu mínútur,“ sagði Carrick. „Það eru ýmsar ástæður fyrir þessu – engar afsakanir, við spiluðum bara ekki nógu vel í dag,“ bætti hann við. Harry Maguire kom United yfir með skalla eftir rúmlega hundrað sekúndna leik, áður en Samuel Chukwueze birtist á fjærstönginni og jafnaði metin fyrir Milan. Menn Carricks náðu forystunni aftur í seinni hálfleik með marki frá Patrick Dorgu áður en Alphadjo Cissè, Gonçalo Ramos og Ruben Loftus-Cheek skoruðu með stuttu millibili og sneru leiknum við. Marcus Rashford spilaði í treyju United í fyrsta sinn síðan í desember 2024 þegar honum var skipt inn á eftir klukkutíma leik, eftir að lánsdvöl hans hjá Barcelona lauk, en sex breytingar voru gerðar á liðinu í leiknum. „Margir strákanna munu hafa gott af þessum mínútum. Við erum með góðan hóp, svo það þarf að taka ákvarðanir,“ sagði Carrick. United hefur leik í ensku úrvalsdeildinni þann 22. ágúst þegar þeir heimsækja nýliða Hull.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Sjá meira