Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar 16. ágúst 2026 07:17 Fyrsti hlekkurinn í ófrelsisfjötrum Íslands brast þegar einokunarverslun Dana var afnumin árið 1787. Þá var Ísland fátækt og vanmáttugt land undir erlendri stjórn og fáir hefðu líklega þorað að sjá fyrir sér sjálfstætt íslenskt lýðveldi. En með afnámi einokunarverslunarinnar hafði verið stigið mikilvægt skref á langri leið þjóðarinnar til sjálfstæðis. Þetta voru miklir umbrotatímar í sögu heimsins. Tveimur árum síðar, árið 1789, hófst franska byltingin og um svipað leyti var verið að festa nýja stjórnskipan Bandaríkjanna í sessi. Hugmyndir um frelsi, réttindi þjóða og rétt manna til að ráða eigin málum voru að ryðja sér til rúms. Á Íslandi hófst hins vegar löng og þrautseig vegferð. Skúli Magnússon landfógeti og samtímamenn hans stefndu ekki beinlínis að stofnun íslensks lýðveldis. Aðstæður þjóðarinnar voru einfaldlega ekki þannig. Verk þeirra lögðu þó mikilvægan grunn að því sem síðar varð. Þeir sýndu að Íslendingar gætu tekið eigin mál í sínar hendur og byggt land sitt upp á eigin forsendum. Síðar tóku aðrir við keflinu. Endurreisn Alþingis árið 1845 varð mikilvægur áfangi. Jón Sigurðsson og samherjar hans kröfðust aukinna réttinda Íslendinga og héldu þeirri hugsjón á lofti að þjóðin ætti sjálf að ráða málum sínum. Stjórnarskráin 1874, heimastjórnin 1904 og fullveldið 1918 urðu síðan vörður á þessari leið. Hvert skref færði ákvörðunarvaldið nær íslensku þjóðinni. Svo rann upp 17. júní 1944. Þá náðu Íslendingar því marki sem kynslóðir höfðu, með einum eða öðrum hætti, lagt grunninn að. Á Þingvöllum var lýðveldið Ísland stofnað og þjóðin tók endanlega ábyrgð á eigin ríki. Baráttan hafði tekið áratugi og í raun aldir. Í ár eru 82 ár frá stofnun lýðveldisins. Það er ekki langur tími í sögu þjóðar. Þess vegna eigum við að fara varlega með þá arfleifð sem okkur var falin. Sjálfstæði þjóðar felst því að mynda ekki aðeins í þjóðfána, þjóðsöng eða hátíðarræðum sem haldnar eru á 17. júní. Raunverulegt sjálfstæði birtist ekki síst í því hvar ákvörðunarvaldið liggur í raun. Hver setur lögin? Hver fer með framkvæmdarvaldið? Hver dæmir eftir þeim lögum sem gilda í landinu? Hver ræður yfir auðlindunum og hver mótar stefnu þjóðarinnar þegar íslenskir hagsmunir rekast á hagsmuni annarra ríkja ? Þessar spurningar eru lifandi spurningar samtímans. Valdið fært úr landi Nú stöndum við Íslendingar enn á ný frammi fyrir grundvallarspurningu um það hvar vald yfir íslenskum málefnum eigi að liggja. Ríkisstjórnin hefur efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki bara spurning um viðskipti, gjaldmiðil eða alþjóðlegt samstarf. aðild snertir sjálfan grundvöll íslenska ríkisins og það ákvörðunarvald sem þjóðin hefur öðlast í langri sjálfstæðisbaráttu. Við höfum EES samninginn og þar með aðgang að innri markaði evrópu í dag. Íslensk stjórnskipan byggist á þrískiptingu ríkisvaldsins í löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald. Með aðild að Evrópusambandinu yrði hluti þess valds sem íslenska ríkið fer með í dag bundinn sameiginlegri og yfirþjóðlegri ákvarðanatöku sambandsins. Það er grundvallaratriði sem ekki má hverfa í umræðunni um einstaka styrki, gjaldmiðil eða skammtímahagsmuni. Í mínum huga er þetta kjarni málsins. Við þurfum ekki að vera á móti Evrópu til að vilja standa utan Evrópusambandsins. Ísland á að eiga náið og gott samstarf við Evrópuríki. Við eigum að eiga greið viðskipti við nágranna okkar og taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. En samstarf milli þjóða þarf ekki að byggjast á því að sífellt meira ákvörðunarvald sé fært frá þjóðríkjum til yfirþjóðlegra stofnana. Ísland er lítið ríki en auðugt af auðlindum. Við eigum fiskimiðin, orkuna, vatnið og landið. Við höfum byggt upp samfélag sem tekur mið af íslenskum aðstæðum og íslenskum hagsmunum. Því fylgir sú ábyrgð að varðveita svigrúm komandi kynslóða til að taka sjálfar ákvarðanir um framtíð landsins. Segjum nei 29. ágúst Þess vegna snýst þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst að mínu mati um meira en það eitt hvort hefja eigi aðildarviðræður. Hún snýst um þá grundvallarspurningu hvort við viljum halda áfram á þeirri braut sem fyrri kynslóðir mörkuðu – að ákvörðunarvald um íslensk málefni skuli vera í höndum íslensku þjóðarinnar. Ég hvet alla Íslendinga sem bera hag, sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar fyrir brjósti til að segja nei 29. ágúst. Með því höfnum við þeirri hugmyndafræði að framtíð Íslands sé best tryggð með því að færa meira vald frá íslensku þjóðinni til yfirþjóðlegra stofnana. Við segjum þess í stað já við áframhaldandi samstarfi við aðrar þjóðir, en á grundvelli sjálfstæðis, gagnkvæmrar virðingar og íslenskra hagsmuna. Sjálfstæðisbaráttan lauk ekki á Þingvöllum 17. júní 1944. Þar lauk einum kafla hennar. Verkefni hverrar kynslóðar er að varðveita þann rétt sem fyrri kynslóðir unnu og skila honum áfram til þeirrar næstu. Forfeður okkar börðust kynslóð fram af kynslóð fyrir því að færa valdið heim. Okkar kynslóð á ekki að vera sú sem færir það aftur úr landi. Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei. Höfundur er Oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar