Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Samúel Karl Ólason skrifar 17. ágúst 2026 10:09 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/Matias Delacroix Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja ólmir senda hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, þar sem þeir eiga að herja á leiðtoga og meðlimi glæpasamtaka sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn fellt rúmlega tvö hundruð manns í loftárásum á meinta smyglara sem eiga að hafa verið að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Panama í síðustu viku og þá tilkynnti hann að yfirvöld þar og í Kólumbíu, Gvatemala og Hondúras hefðu samþykkt að leyfa bandarískum hermönnum að starfa með þarlendum hermönnum gegn fíkniefnasamtökum. Ríkisstjórn Ekvador samþykkti slíkt í mars. Bandaríkjamenn gerðu þá loftárás í Ekvador, sem átti að hafa verið gegn þjálfunarbúðum fyrir fíkniefnasmyglara. Blaðamenn New York Times sögðu þá að svo virtist sem að árásin hafi þess í stað verið gerð á mjólkurbú. Þar hafi engar vísbendingar fundist um glæpastarfsemi. Ráðamenn í Gvatemala segjast ekki hafa samþykkt að hleypa bandarískum hermönnum inn í landið, samkvæmt AP fréttaveitunni. Í Panama sagði Hegseth að hermennirnir í Suður-Ameríku ættu að gera það sama og Bandaríkjamenn hafa verið að gera á Karíba- og Kyrrahafinu. „Sömu áhrifin á landi,“ sagði Hegseth. Vísaði hann til þess að Bandaríkjamenn myndu starfa með áðurnefndum ríkjum gegn þessum glæpasamtökum. Q) What type of results would you like to see in the short term?@SECWAR “Operational capability like you saw with the strikes on the drug boats—same effect on land.We're working with Ecuador.We're working with Colombia.We're working partners to bring the fight to the DTOs… pic.twitter.com/W094tEynLd— DOW Rapid Response (@DOWResponse) August 13, 2026 Donald Trump og starfsfólk hans hafa haldið því fram að Bandaríkin eigi í átökum við fíkniefnasamtök í Mið- og Suður-Ameríku sem hafa verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Því hefur verið haldið fram að þessir meintu smyglarar séu vígamenn og Bandaríkin eigi í átökum við þá. Tuttugu glæpasamtök í Suður-Ameríku hafa verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Átök þessi eiga að vera sambærileg átökum Bandaríkjanna við hryðjuverkamenn svo þingið þurfi ekki að lýsa yfir stríði, í samræmi við lög. „Hvar sem þú smyglar fíkniefnum eða ógnar bandarísku fólki eða bandamönnum okkar, ertu skotmark alveg eins og ISIS eða al-Qaeda.“ Allan blaðamannafund Hegseths, þar sem hann ræddi það að senda hermenn gegn glæpasamtökum í Suður-Ameríku má sjá í spilaranum hér að neðan. Löng og umdeild saga íhlutuna í „bakgarðinum“ Árásirnar eru verulega umdeildar en Bandaríkjamenn hafa ekki fært sannanir fyrir ásökunum sínum um að bátarnir séu notaðir til að smygla fíkniefnum. Þar að auki er ekki dauðarefsing fyrir fíkniefnasmygl í neinu ríki Bandaríkjanna og hafa árásirnar verið gagnrýndar harðlega sem aftökur án dóms og laga. Dauðarefsing liggur almennt ekki við fíkniefnabrotum í nokkru ríki Bandaríkjanna og enginn hefur verið dæmdur til dauða fyrir slík brot. Árásirnar hafa því oft verið kallaðar aftökur án dóms og laga. Trump-liðar hafa beitt ríkisstjórn Mexíkó miklum þrýstingi og farið fram á að fá að senda hermenn þangað. Það hefur ekki gerst en fregnir hafa borist af því að útsendarar Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) hafi starfað með hermönnum og löggæslumönnum í Mexíkó. Sjá einnig: Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Bandaríkjamenn hafa um árabil sent hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, sem bandarískir ráðamenn hafa lengi talað um sem „bakgarð“ þeirra. Frá því Trump tók aftur við embætti forseta hefur meiri áhersla verið lögð á heimsálfuna en á undanförnum áratugum. Bandarískir hermenn námu Nicolas Maduro, forseta Venesúela, á brott fyrr á árinu og þá hafa Bandaríkjamenn sett Kúbu í herkví og hóta ítrekað hernaðaríhlutun þar, svo eitthvað sé nefnt.
Bandaríkin Donald Trump Hernaður Ekvador Kólumbía Gvatemala Hondúras Mexíkó Panama Venesúela Kúba Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira