Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Andri Broddason skrifar 17. ágúst 2026 22:30 Manchester City virðist ætla að kaupa Ayyoub Bouaddi í stað Rodri. Samsett/Getty Viðræður Manchester City við franska félagið Lille um að fá leikmanninn Ayyoub Bouaddi eru komnar langt á leið. Þetta kemur eftir að Manchester City hefur samþykkt tilboð frá Barcelona í Rodri.
Búist er við að Rodri sé á förum frá Manchester City en félagið hefur samþykkt 65 milljón punda tilboð frá Barcelona í leikmanninn. Rodri er búinn að vera einn mikilvægasti leikmaður Manchester City síðustu ár og fékk Gullknöttinn árið 2024. Síðan þá hefur hann glímt við meiðsli en var aftur mættur í sitt lykilhlutverk hjá spænska landsliðinu í sumar þegar liðið varð heimsmeistari í annað skiptið. Fyrr í sumar var Rodri orðaður sterklega við Real Madrid á Spáni en nú hefur staðan breyst og hann virðist vera á leiðinni til Barcelona. Rodri mun skilja eftir stórt skarð á miðjunni en félagið er strax í viðræðum við leikmann í staðinn. Viðræður félagsins eru komnar langt á leið við Lille um að fá miðjumanninn Ayyoub Bouaddi. Hann er einnig djúpur miðjumaður og ætti að leika svipað hlutverk og Elliot Anderson gerir á miðjunni. Bouaddi er aðeins 18 ára gamall en á samt 63 leiki fyrir Lille. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið aðeins 16 ára gamall árið 2023 og hjálpaði þá liðinu að enda í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Hann hefur því verið liðsfélagi Hákons Haraldsonar hjá Lille síðustu ár. Svo virðist sem Manchester City vilji einnig næla í Enzo Fernandez frá Chelsea en það mun ekki vera ódýr leikmaður. Chelsea vill fá 120 milljónir punda fyrir leikmanninn sem myndi gera hann að einum af dýrustu leikmönnum heims.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti Fleiri fréttir Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Sjá meira