Innherji

Sér fram á að hröð skuldalækkun geti tvö­faldað virði Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, aðaleigandi og stjórnarformaður Alvotech. Uppgjör Alvotech fyrir annan fjórðung verður birt eftir lokun markaða vestanhafs á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst, en miðað við spár greinenda er ljóst að niðurstaðan þar verður fremur veik og sölutekjur dræmar.
Róbert Wessman, aðaleigandi og stjórnarformaður Alvotech. Uppgjör Alvotech fyrir annan fjórðung verður birt eftir lokun markaða vestanhafs á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst, en miðað við spár greinenda er ljóst að niðurstaðan þar verður fremur veik og sölutekjur dræmar.

Bandaríski fjárfestingabankinn Evercore telur Alvotech talsvert undirverðlagt á markaði og að hlutabréfaverðið geti hækkað skarpt með auknum rekstrarhagnaði og minnkandi skuldsetningu. Samkvæmt nýrri greiningu, sem er sögð byggja á varfærnum forsendum, þá er samt gert ráð fyrir að markaðssetning sumra mikilvægustu hliðstæðna Alvotech muni tefjast vegna deilna um einkaleyfi og að hámarkstekjur verði verulega undir þeim áætlunum sem stjórnendur hafa áður rætt um.


Tengdar fréttir

Bandarískur sjóður byggt upp um fimm pró­senta stöðu í kjölfar út­boðs Al­vot­ech

Bandarískur sjóður, sem hefur einkum lagt áherslu á fjárfestingar í heilbrigðistengdum fyrirtækjum, hefur byggt upp stóra stöðu í Alvotech í kjölfar útboðs líftæknilyfjafélagsins og er núna þriðji stærsti hluthafinn með nærri fimm prósenta hlut. Tveir þekktustu vogunarsjóðsrisar í heimi voru jafnframt meðal fjárfesta sem keyptu drjúgan hluta þeirra bréfa sem Alvotech seldi í hlutafjáraukningu félagsins í byrjun sumars.

Vonast eftir aukinni veltu með inn­komu yfir þrjátíu nýrra er­lendra sjóða

Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.

Áfall fyrir keppi­nautinn í hliðstæðum við Simponi talið geta styrk stöðu Al­vot­ech

Alvarlegar athugasemdir Evrópsku lyfjastofnunarinnar við framleiðsluaðstöðu kínverska líftæknifyrirtækisins Bio-Thera gætu styrkt stöðu Alvotech verulega á einum verðmætasta markaði félagsins á næstu árum. Bio-Thera hefur hingað til verið eini þekkti keppinautur Alvotech á markaði með hliðstæður við frumlyfið Simponi en Róbert Wessman hefur nýlega sagt að hann geri ráð fyrir að félagi verði í fararbroddi í sölu á því lyfi í Bandaríkjunum.

Gefur Al­vot­ech nauð­syn­leg svigrúm og losar um óvissu sem vofði yfir félaginu

Yfir tuttugu milljarða hlutafjáraukning Alvotech átti ekki að koma á óvart með hliðsjón af þróun lausafjárstöðu á fyrsta fjórðungi og áformum um áframhaldandi miklar fjárfestingar, að sögn erlendra greinenda, en þeir segja stjórnendur núna hafa meiri sveigjanleika til að mæta rekstrarþörf félagsins auk þess sem búið sé að styrkja og einfalda fjárfestasöguna. Mikil velta hefur verið með bréf félagsins frá opnun markaðarins vestanhafs í dag og gengið hækkað talsvert frá útboðsgenginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×