Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar 19. ágúst 2026 08:30 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið (ESB) hefur lítið verið rætt um heilbrigðismál. Það skýrist án efa af því að reglur um heilbrigðisþjónustu innan ESB eru að meginstefnu til ekki samræmdar milli aðildarríkja. Því ákveður hvert ríki fyrir sig hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð, veitt og fjármögnuð. Áhrif Evrópusambandsins og EES-samningsins á heilbrigðiskerfi aðildarríkjanna eru þó umtalsverð. Hvað Ísland varðar felur EES-samningurinn í sér fjölda reglna sem varða heilbrigðismál, má þar nefna reglur er varða lyf, lækningatæki, viðurkenningu starfsréttinda, heilbrigðisþjónustu yfir landamæri, heilsuvernd, lýðheilsu o.fl. en ESB leggur víðtæka áherslu á verndun heilsu við mótun og framkvæmd allra stefnumála. Mikilvæg atriði er varða heilbrigðisviðbúnað falla hins vegar utan EES-samningsins og er brýnt fyrir okkur sem þjóð að huga að. Öryggi almennings á Íslandi Öryggi almennings og heilbrigðisviðbúnaður þjóðar byggir m.a. á sterku heilbrigðiskerfi og að stjórnvöld hafi fyrir fram tryggðan aðgang að nauðsynlegum lyfjum, bóluefnum, greiningarprófum og lækningatækjum þegar alvarlegar heilbrigðisógnir, eins og t.d. farsóttir, náttúruhamfarir, mengunarslys eða stríð, steðja að. Heimsfaraldur COVID-19 sýndi að slíkar heilbrigðisógnir virða ekki landamæri. Þegar birgðakeðjur raskast, framleiðsla verður fyrir áföllum og eftirspurn eykst samtímis í mörgum ríkjum er ljóst að engin þjóð stendur slíkt af sér ein og sér. Þá skiptir sköpum að ríki hafi aðgang að sameiginlegum viðbragðskerfum sem geta samræmt upplýsingar, innkaup, framleiðslu og önnur varnarviðbrögð. Þetta á ekki síst við um Ísland, sem er örríki í slíku samhengi og háð alþjóðlegum aðfangakeðjum. Þar sem heilbrigðisviðbúnaður fellur utan EES-samningsins sitjum við því ekki við sama borð og Evrópusambandsríki ef til alvarlegrar vár kemur. Í heimsfaraldrinum vorum við svo heppin að vinir okkar Svíar fengu að kaupa bóluefni fyrir okkur og Norðmenn í gegnum ESB. Ekki er víst að sú verði raunin í næsta faraldri eða ef aðrar ógnir dynja yfir. Það er því nauðsynlegt fyrir öryggi almennings að Ísland tryggi samstarf við Evrópusambandið um heilbrigðisviðbúnað. Það er mögulegt að gera á tvennan hátt, í gegnum tvíhliða samning við ESB eða í gegnum aðild. Heilbrigðisviðbúnaður og ESB Heimsfaraldurinn markaði þáttaskil í þróun heilbrigðismála innan Evrópusambandsins og að þeirri reynslu fenginni hóf Evrópusambandið öfluga uppbyggingu heilbrigðisviðbúnaðar. Sett var á stofn svonefnt Evrópskt heilbrigðissamband (European Health Union) þar sem m.a. hlutverk Sóttvarnarstofnunar Evrópu (ECDC) og Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) var eflt til að styrkja sameiginlega getu. Einnig var settur samstarfsrammi og stofnuð sérstök framkvæmdaeining sem kallast HERA (Health Emergency Preparedness and Response Authority) og fleira mætti telja. Verkefni HERA er að tryggja nauðsynlegar læknisfræðilegar mótvægisaðgerðir (e. countermeasures), meðal annars bóluefni, lyf, greiningarbúnað, hlífðarbúnað og tækjabúnað sem þörf er á hverju sinni. HERA vinnur að áhættugreiningum, rannsóknum, sameiginlegum innkaupum, birgðahaldi, eflingar framleiðslugetu ásamt samstarfi við iðnað og aðra aðila. Ef til heilbrigðisvár kemur virkjast HERA sem framkvæmdaaðili á sviði stjórnunar, innkaupa og annars sem til fellur. Sérstök áhersla er innan ESB á aukið lyfjaframboð og lyfjaöryggi en þar er Ísland veikt fyrir. Viðræður eru í gangi Það er óumdeilt að EES-samningurinn hefur skipt Ísland miklu máli og styrkt stöðu okkar á fjölmörgum sviðum. Hann nær þó ekki, eins og áður sagði, utan um allan þann neyðarviðbúnað og mótvægisaðgerðir sem nauðsynlegar gætu verið við alvarlega heilbrigðisvá. Aðgerðir sem byggja á fjármögnun ESB, neyðarvaldi eða pólitískri samstöðu falla utan EES-samningsins. Ísland á því í viðræðum við Evrópusambandið ásamt Noregi og Liechtenstein um sérstakan samning á þessu sviði. Þar er m.a. fjallað um að tengja ríkin við HERA samstarfið. Samningar hafa enn ekki tekist og ljóst er að þó svo verði, mun Ísland ekki standa jafnfætis aðildarríkjum Evrópusambandsins þegar kemur að stjórnun, innkaupum, birgðum, samningum, fjármögnun, gögnum og rannsóknum, þótt við myndum vissulega færast nær þeim. Já er öruggi valkosturinn Alvarlegustu heilbrigðisógnirnar verða ekki leystar með innlendum úrræðum einum saman. Ef Ísland vill tryggja íbúum sínum sem besta vernd þurfum við að hafa aðgang að sameiginlegu öryggis- og heilbrigðisneti sem nær lengra en EES-samningurinn. Í störfum mínum sem gjörgæslulæknir, landlæknir og nú heilbrigðisráðherra hef ég haft það að leiðarljósi að ákvarðanir séu byggðar á bestu og áreiðanlegustu upplýsingum sem hægt er að fá og fyrir liggja hverju sinni. Þess vegna kemur ekki annað til greina hjá mér en að segja Já þann 29. ágúst. Ef við kjósum Já í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þá munum við halda áfram viðræðum og vonandi ná samningi. Þá fyrst fáum við áreiðanlegar upplýsingar um þau réttindi og skyldur sem felast í aðild Íslands að Evrópusambandinu og getum með hlutlægum hætti myndað okkur skoðun um inngöngu. Víst er að samningsstaða okkar nú er sterk og því væri miður að láta sér þetta tækifæri úr greipum ganga. Í þeim viðsjárverða heimi sem umlykur okkur er mikilvægt að við höldum öllum möguleikum opnum. Já er því öruggi valkosturinn. Höfundur er heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alma D. Möller Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar