Sigurbjörn í sérflokki og tveir þjálfarar toppa formann KSÍ á tekjulistanum Sindri Sverrisson skrifar 18. ágúst 2026 13:33 Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson störfuðu saman hjá Breiðabliki og Halldór tók svo við sem aðalþjálfari liðsins. Þeir eru í 3. og 4. sæti lista Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæsta íþróttafólkið á Íslandi 2025. Vísir/Hulda Margrét Hestamaðurinn Sigurbjörn Bárðarson, Íþróttamaður ársins 1993, var með langhæstar tekjur íþróttafólks á Íslandi á síðasta ári. Tveir þjálfarar úr Bestu deild karla í fótbolta reyndust með hærri tekjur en formaður KSÍ. Þetta kemur fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag en þar er meðal annars greint frá útsvarsskyldum tekjum hóps íþróttamanna og þjálfara. Sigurbjörn var samkvæmt úttektinni að meðaltali með rúmar fimm milljónir króna á mánuði í tekjur, eða um 1,1 milljón meira en aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson sem er í 2. sæti íþróttamannalistans. Sigurbjörn Bárðarson var landsliðsþjálfari í hestaíþróttum á síðasta ári.Vísir Þeir Sigurbjörn og Hafþór skera sig úr á listanum en næstir á eftir koma fótboltaþjálfarar sem unnu saman í nokkur ár, þeir Halldór Árnason sem var þjálfari Breiðabliks og Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfar KR. Þeir voru með ívið hærri tekjur en Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sem er í 6. sæti listans, rétt fyrir ofan starfsmann sambandsins, Arnar Gunnlaugsson sem þjálfar A-landslið karla. Tekjuhæsta íþróttafólkið á lista Frjálsrar verslunar: Sigurbjörn Bárðarson, fv. landsliðsþjálfari í hestaíþróttum, 5.094.000 Hafþór Júlíus Björnsson, aflraunamaður, 3.913.000 Halldór Árnason, fv. þjálfari Breiðabliks í fótbolta, 1.948.000 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR í fótbolta, 1.906.000 Gunnar Nelson, bardagaíþróttamaður, 1.844.000 Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, 1.839.000 Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, 1.813.000 Sigursteinn Arndal, fv. þjálfari FH í handbolta, 1.716.000 Logi Ólafsson, fv. fótboltaþjálfari og íþróttakennari, 1.675.000 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í fótbolta, 1.651.000 Ljóst er að tekjur íþróttafólksins á listanum eru ekki endilega allar vegna starfa í íþróttahreyfingunni. Handboltaþjálfarinn Sigursteinn Arndal, sem er í 8. sæti listans, er til að mynda sömuleiðis sölustjóri hjá Sýn, og fótboltamaðurinn Viktor Karl Einarsson stofnaði fyrirtækið Zantino og selur sérsaumuð jakkaföt auk þess að vera dreifingastjóri Maul. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Tekjur Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira
Þetta kemur fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag en þar er meðal annars greint frá útsvarsskyldum tekjum hóps íþróttamanna og þjálfara. Sigurbjörn var samkvæmt úttektinni að meðaltali með rúmar fimm milljónir króna á mánuði í tekjur, eða um 1,1 milljón meira en aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson sem er í 2. sæti íþróttamannalistans. Sigurbjörn Bárðarson var landsliðsþjálfari í hestaíþróttum á síðasta ári.Vísir Þeir Sigurbjörn og Hafþór skera sig úr á listanum en næstir á eftir koma fótboltaþjálfarar sem unnu saman í nokkur ár, þeir Halldór Árnason sem var þjálfari Breiðabliks og Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfar KR. Þeir voru með ívið hærri tekjur en Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sem er í 6. sæti listans, rétt fyrir ofan starfsmann sambandsins, Arnar Gunnlaugsson sem þjálfar A-landslið karla. Tekjuhæsta íþróttafólkið á lista Frjálsrar verslunar: Sigurbjörn Bárðarson, fv. landsliðsþjálfari í hestaíþróttum, 5.094.000 Hafþór Júlíus Björnsson, aflraunamaður, 3.913.000 Halldór Árnason, fv. þjálfari Breiðabliks í fótbolta, 1.948.000 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR í fótbolta, 1.906.000 Gunnar Nelson, bardagaíþróttamaður, 1.844.000 Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, 1.839.000 Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, 1.813.000 Sigursteinn Arndal, fv. þjálfari FH í handbolta, 1.716.000 Logi Ólafsson, fv. fótboltaþjálfari og íþróttakennari, 1.675.000 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í fótbolta, 1.651.000 Ljóst er að tekjur íþróttafólksins á listanum eru ekki endilega allar vegna starfa í íþróttahreyfingunni. Handboltaþjálfarinn Sigursteinn Arndal, sem er í 8. sæti listans, er til að mynda sömuleiðis sölustjóri hjá Sýn, og fótboltamaðurinn Viktor Karl Einarsson stofnaði fyrirtækið Zantino og selur sérsaumuð jakkaföt auk þess að vera dreifingastjóri Maul. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjuhæsta íþróttafólkið á lista Frjálsrar verslunar: Sigurbjörn Bárðarson, fv. landsliðsþjálfari í hestaíþróttum, 5.094.000 Hafþór Júlíus Björnsson, aflraunamaður, 3.913.000 Halldór Árnason, fv. þjálfari Breiðabliks í fótbolta, 1.948.000 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR í fótbolta, 1.906.000 Gunnar Nelson, bardagaíþróttamaður, 1.844.000 Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, 1.839.000 Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta, 1.813.000 Sigursteinn Arndal, fv. þjálfari FH í handbolta, 1.716.000 Logi Ólafsson, fv. fótboltaþjálfari og íþróttakennari, 1.675.000 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks í fótbolta, 1.651.000
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira