„Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Freyja Þórisdóttir skrifar 20. ágúst 2026 15:34 Gestir Pallborðsins hafa verið áberandi í umræðunni og ætla tveir þeirra að kjósa já og tveir þeirra nei. Þau eru: Jóhannes Óli Sveinsson, forseti Ungs jafnaðarfólks, og María Malmquist, varaformaður Uppreisnar, af Já-hliðinni og Steinar Ingi Kolbeins, fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, og Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi af Nei-hliðinni. Vísir/Lýður Valberg Nei-arar kölluðu „Já til að sjá“ markaðsbrellu í það minnsta þrisvar sinnum á nokkrum mínútum þegar fulltrúar já- og nei-hliðarinnar mættust í Pallborði þar sem ungt fólk var í brennidepli. Já-ari sagði sérfræðinga tala í kross og það væri eflaust mörgu ungu fólki sem fyndist það vera bestu útkomuna úr atkvæðagreiðslunni í lok ágúst að fá að sjá með eigin augum hvað fælist í samningi.
Ungt fólk frá báðum hliðum mættist í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleira kom þar við sögu og var markmið Pallborðsins að ungt fólk væri einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi eftir að hafa fylgst með henni. Af Já-hliðinni voru það Jóhannes Óli Sveinsson, forseti Ungs jafnaðarfólks, og María Malmquist, varaformaður Uppreisnar. Af Nei-hliðinni voru það Steinar Ingi Kolbeins, fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra, og Magnea Gná Jóhannsdóttir, varaborgarfulltrúi. Hér fyrir neðan má horfa á Pallborðið í heild sinni. Skömmu eftir að pallborðið hófst hafði Steinar orð á því að málin yrðu ekki mikið stærri, það þyrfti að breyta stjórnarskránni ef gengið yrði í Evrópusambandið. „Í grundvallaratriðum þá liggur algerlega fyrir hvað verður í pakkanum en „Já til að sjá“, þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella,“ segir hann. Gert lítið úr gjörningnum Þá tók hann sem dæmi auglýsingar sem hann sagði augljóslega hafa verið beint að ungu fólki undanfarin misseri þar sem verið væri að gera lítið úr því hversu stór ákvörðunin þann 29. ágúst. „Þessi gjörningur er ekki sambærilegur því að skoða matseðil eða skoða íbúð,“ sagði hann og bætti svo seinna við: „Ég kalla þetta markaðsherferð ef ég ætla að vera góður en markaðsbrellu ef ég ætla að vera grimmur.“ Jóhannes Óli svaraði og tók heils hugar undir með Steinari hvað það varðaði að málið væri svo sannarlega stórt og þess vegna væri verið að fara í tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann tók hins vegar ekki undir með Steinari um að „Já til að sjá“ eða að „kíkja í pakkann“ væri vel heppnuð markaðsbrella. „Þú getur kallað þetta markaðsbrellu, en ég held að mörgum líði svona,“ sagði hann og bætti við: „Málið er að við höfum rætt þetta fram og til baka og sérfræðingar tala oftar en ekki í kross.“ Vilji fá málin á hreint Sagði hann og vitnaði í þá upplýsingaóreiðu sem hefur ríkt í kosningabaráttu beggja hliða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst. Meðal annars hefur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra haft á orði að einhverjir forystumenn hafi látið stór orð falla, líklega í hita leiksins, með það fyrir augum að magna upp og ala á klofningi sem þeir telji að geti orðið sér og sínum málstað til framdráttar. Í síðasta Pallborði var mjög svipað upp á teningnum og þar sökuðu fulltrúar hina hliðina um að hreint út sagt ljúga að landsmönnum og fara reglulega með rangt mál. „Við [ungt fólk] viljum mörg einfaldlega fá á hreint hvað er að sjá,“ ítrekar Jóhannes og bætir seinna við að „þá sé miklu betra að sjá fyrir sér hvaða áhrif innganga myndi hafa“.
Pallborðið Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Vilja segja „já til að sjá“ Stofnfundur samtaka fólks sem hyggst greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið, SJÁ, verður haldinn í dag. Samtökin sameinist um að segja „já“ til að „sjá samning“. 18. júní 2026 16:05 Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna. 16. júní 2026 16:07 Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira
Vilja segja „já til að sjá“ Stofnfundur samtaka fólks sem hyggst greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið, SJÁ, verður haldinn í dag. Samtökin sameinist um að segja „já“ til að „sjá samning“. 18. júní 2026 16:05
Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna. 16. júní 2026 16:07
Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þann 29. ágúst. Fylgst verður með nýjustu tíðindum í aðdraganda atkvæðagreiðslu í Evrópuvaktinni hér að neðan. 17. ágúst 2026 10:39