Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. ágúst 2026 22:08 Þorgerður greindi frá því fyrir nokkrum dögum að hún væri búin „að ákveða að reima á sig hlaupaskóna“ en hún sagði markmiðið vera að hafa gaman og komast í mark. Facebook Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ein þeirra sem gerðu sér lítið fyrir og hlupu tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í fyrsta skipti en hún fór létt með það ef marka má færslur sem hún deildi á Facebook.
Það var á sjötta kílómetra hlaupsins sem Þorgerður virðist hafa skilið aðstoðarmann sinn eftir í rykinu eins og sagt er.Skjáskot/Facebook Aðstoðarmaður hennar, Ingileif Friðriksdóttir, var samferða Þorgerði fyrstu kílómetrana en varð svo að játa sig sigraða og leyfa þeirri síðarnefndu að taka fram úr sér. „Skemmst frá því að segja að Þorgerður er tekin fram úr mér,“ segir Ingileif meðal annars í myndbandsfærslu sem hún deildi ásamt Þorgerði á Facebook eftir hlaupið en hún bætti svo við „sjáumst bara í markinu gamla mín.“ Þorgerði, sem er um þrjátíu árum eldri en Ingileif, leið „hrikalega vel“ að loknu hlaupinu en hún sagði það besta við daginn hafa verið að sjá alla sem mættu á hliðarlínu hlaupaleiðarinnar og hvöttu hlaupara til dáða. Þá væri líka svo frábært að sjá öll mismunandi málefnin sem fólk hljóp til styrktar. Í sinni færslu sagði hún svo: „Vá hvað það var gaman að hlaupa 10 km í fyrsta sinn í Reykjavíkurmaraþoninu! Þvílík gleði og kraftur,“ og óskaði hinum hlaupurunum til hamingju með daginn.
Hlaup Reykjavík Viðreisn Menningarnótt Reykjavíkurmaraþon Tengdar fréttir Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni. 22. ágúst 2026 20:33 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Sjá meira
Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni. 22. ágúst 2026 20:33
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“