Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2026 23:16 Ollie Watkins gæti hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Aston Villa. getty/Simon Stacpoole Aðspurður um fjarveru Ollie Watkins í 4-0 tapi Aston Villa fyrir Brighton í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag sagði Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, að enski landsliðsframherjinn yrði að útskýra hana sjálfur.
Villa hefur selt lykilmennina Youri Tielemans, Morgan Rogers, Ezri Konsa og Lucas Digne í sumar. Watkins hefur sömuleiðis verið orðaður við brottför frá Villa en Al-Hilal í Sádi-Arabíu hefur gert tilboð í hann. Watkins var ekki í leikmannahópi Villa sem steinlá fyrir Brighton, 4-0, í dag. Eftir leikinn var Emery spurður að því hvort hann hefði ákveðið að skilja Watkins eftir utan hóps. „Það er spurning fyrir hann. Þú getur hringt í hann og reynt að fá svar,“ sagði Emery. „Leikmennirnir hér vildu spila og við vorum með tvo framherja sem voru lítillega meiddir. Spurningin um Watkins er fyrir hann.“ Emilano Martínez var heldur ekki í leikmannahópi Villa í dag en félagaskipti argentínska markvarðarins til Juventus féllu upp fyrir á dögunum. Villa sá aldrei til sólar í leiknum á American Express-leikvanginum í dag en eftir 31 mínútur var liðið lent 4-0 undir. Joao Gomes fékk svo rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks en Brighton bætti þó ekki fleiri mörkum við. Hinn þrítugi Watkins kom til Villa frá Brentford fyrir sex árum. Hann hefur skorað 108 mörk í 278 leikjum fyrir félagið og vann Evrópudeildina með því í vor.
Enski boltinn Aston Villa FC Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Sjá meira