Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 09:45 Ég hef undanfarið rekist á nokkrar stöðuuppfærslur á Fésbókinni og greinar þar sem viðkomandi gerir grein fyrir atkvæði sínu 29. ágúst næstkomandi. Þar er talið til að fólk sem ætli sér að segja nei, sé helst eitthvað ,,auðvaldspakk” og kvótaeigendur sem vilja halda í óbreytt kerfi. Kvótinn sé í eigu nokkurra fjölskyldna á Íslandi og það sé ekki greitt eðlilegt gjald fyrir afnot af auðlindinni. Þá er sums staðar beinlínis gefið í skyn að nauðsynlegt sé að kjósa já til þess á einhvern hátt að hegna kvótaeigendum. Þetta finnst mér vægast sagt dapurlegur málflutningur. Kvótakerfinu var komið á á Íslandi 1984 f.o.f. til að koma stjórn á fiskveiði og draga úr ofveiði. Aflaheimildum og aflamarki er úthlutað árlega í öllum fiskitegundum sem veitt er úr af fiskistofu, eftir ráðgjöf frá Hafrannsóknarstofnun og er sú ráðgjöf byggð á rannsóknum á stærð og ástandi fiskistofna. Þetta kerfi er ekki gallalaust en hefur þó gefist svo vel að það er talið besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi af þeim sem til þekkja og rányrkja þekkist ekki hér sem er meira en hægt er að segja um Evrópusambandið. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru vel rekin og skila vissulega arði í þjóðarbúið. Þau borga laun, launatengd gjöld, skatta og einnig veiðigjöld sem eins og glöggir menn muna voru hækkuð eftir að núverandi ríkisstjórn tók við. Þá eru fyrirtæki eins og Brim, Síldarvinnslan og Ísfélagið skráð á hlutabréfamarkað og meðal stærstu hluthafanna eru lífeyrissjóðir landsins, þannig að þau okkar sem borga í lífeyrissjóð eigum þannig flest okkar skerf í þessum fyrirtækjum. Sjávarútvegsfyrirtækin eru ein mikilvægasta undirstaða efnahags landsins, þau standa undir 40% af vöruútflutningi þjóðarinnar og þar með gjaldeyristekjum sem gera okkur kleyft að kaupa inn vörur frá útlöndum. Þá hafa þessi fyrirtæki fjárfest í öðrum fyrirtækjum t.d. á sviðum tæknilausna. Ef svo illa fer að kosið verði já þann 29. ágúst og Ísland gengur í kjölfarið í Evrópusambandið þá verður erlendum aðilum gert kleyft að kaupa upp sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi, í dag mega þau eiga 25% en það verður ekkert sem stoppar þau í að eignast þau að fullu. Það hefur verið látið að því liggja að Ísland sé stórveldi þegar kemur að sjávarútvegi en í ESB t.d. á Spáni og Hollandi eru til mun stærri fyrirtæki en eru hér á landi. Þessi fyrirtæki munu senda hingað verksmiðjuskip sem geta unnið aflann um borð eða siglt með hann til vinnslu þar sem launakostnaður er lægri en hér á landi. Þetta verður til þess að ekki aðeins aflinn heldur einnig störf tengd bæði veiðum og vinnslu flytjast úr landi. Ísland hefur komist langt síðan 1984 og hagsæld er með því mesta sem gerist í Evrópu, það er ekki síst sjávarútveginum að þakka. Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur muna kannski hvernig ástandið var hér áður en kvótakerfinu var komið á og stór hluti af útsvari Reykvíkinga fór í það að halda Bæjarútgerð Reykjavíkur á floti. Þannig er ástandið í dag í mörgum löndum Evrópu þar sem útgerðin er rekin með miklum ríkisstyrkjum. Við eigum að vera stolt af því að eiga vel rekin fyrirtæki á Íslandi sem standa undir útflutningi og efnahag landsins. Ég hef ekki komið auga á neinar góðar ástæður fyrir því að kjósa já á laugardaginn og sjávarútvegurinn og kvótakerfið eru það svo sannarlega ekki. Höfundur er læknir, ekki kvótadrottning og á engra beinna hagsmuna að gæta af sjávarútvegi, að öðru leyti en því að greiða í lífeyrissjóð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar