Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2026 13:28 Stefnt er á að unglingadeildin verði klár í dag og skólastarf hefjist samkvæmt stundaskrá á morgun. Vísir/Vilhelm Skólastjóri Hólabrekkuskóla segir að smá hökt á fyrsta skóladegi hljóti að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeild skólans. Á annað hundrað nemendur fóru snemma heim en reiknað er með að öryggisúttekt ljúki í dag. Allir mæta svo í nýtt húsnæði í fyrramálið og hefja námið samkvæmt stundaskrá.
Lovísa Guðrún Ólafsdóttir er skólastjóri í Hólabrekkuskóla í Breiðholti sem telur rúmlega fimm hundruð nemendur og nær til allra bekkja grunnskóla. Líkt og fleiri skólar á öllum stigum víða um land hafa verið vandræði með húsakost undanfarin ár. Um tíma þurfti unglingadeild skólans að flytja sig um set í Korpuhverfi í Grafarvogi en nú horfir til betri vegar. Það var flaggað í tilefni dagsins við Hólabrekkuskóla.Vísir/Vilhelm Lovísa segir öryggisúttekt fyrir helgi hafa leitt í ljós að eitt og annað þyrfti að fínpússa. Allir hafi verið sveittir að laga það um helgina en ekki tekist að ljúka því fyrir fyrsta skóladag í dag. „Við vorum svo glöð í morgun. Við héldum fína skólasetningu og fórum yfir áherslur í skólastarfinu en svo var það bara gleðin við að fá nýtt húsnæði,“ segir Lovísa Guðrún. Lovísa Guðrún Ólafsdóttir er skólastjóri í Hólabrekkuskóla.Reykjavíkurborg Skólahald hófst samkvæmt stundarskrá hjá yngri bekkjum að lokinni skólasetningu. Hjá unglingunum, sem eru um 160, var farið í skoðunarferð um nýja skólann áður en nemendur fóru heim, fyrr en foreldrar þeirra og þeir sjálfir höfðu reiknað með. „Ég get ekki sagt að nemendur hafi verið mjög svekktir með að hafa fengið að fara fyrr heim,“ segir Lovísa Guðrún á léttum nótum. Hólabrekkuskóli hóf starfsemi árið 1974.Vísir/Vilhelm „En við náðum allavega öllum úr rúminu og það hjálpar til við að koma öllum í rútínu.“ Hún nefnir að margir skólar séu einmitt með fyrsta skóladag skertan. „Þetta var ekkert alslæmt þótt maður hefði auðvitað viljað að þetta byrjaði samkvæmt stundaskrá.“ Nokkur reiðhjól voru á blautu leiksvæðinu þegar ljósmyndari Vísis leit við eftir hádegið.Vísir/vilhelm Það skyggir ekkert á gleðina enda hefur biðin eftir nýju húsnæði verið löng og ströng. Nú séu tímamót og tilefni til að gleðjast fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Breiðholtinu. „Þetta hlýtur að vera byrjunin á einhverju stórkostlegu í unglingadeildinni.“
Grunnskólar Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira