Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar 24. ágúst 2026 14:31 Á höfuðdag, 29. ágúst, munu Íslendingar ganga til atkvæða um hvort hefja beri á ný aðildarviðræður við ESB. Sú skoðun hefur um skeið haft nokkurt fylgi að rétt sé að segja já í þessari atkvæðagreiðslu því að „samningaviðræðum“ loknum munum við sjá aðildarsamning sem eftir atvikum sé hægt að segja já eða nei við. Aðildarviðræður eru ekki samningaviðræður tveggja jafngildra aðila, heldur einfaldlega ferli þar sem umsóknarríkinu ber að sýna ESB fram á hvernig það uppfyllir grundvallarregluverk ESB og hvernig það hyggist bæta úr því sem á vantar. Í því ferli er um fátt að semja og alls ekki hluti eins og lægri vexti eða lægra matvælaverð. Hvernig leyfi ég mér að fullyrða þetta? Einfaldlega vegna þess að við höfum verið þarna áður. Þær aðildarviðræður sem nú á að „hefja á ný“ voru hafnar á grundvelli umsóknar um aðild að ESB sem ríkisstjórn Íslands sendi inn árið 2009 og er að mati núverandi ríkisstjórnar enn í fullu gildi. Enda væri annars ekki hægt að hefja aðildarviðræður því aðildarumsókn er fyrsta skrefið. Þær viðræður runnu að lokum út í sandinn, enda aldrei ætlunin hjá ESB að veita Íslendingum einhverja sérmeðferð. Mér er hulið hvernig einhverjum dettur í hug að sú staða hafi nú breyst. Ef eitthvað er hefur afstaða hinnar ókjörnu framkvæmdastjórnar ESB, valdamestu stofnunar þess, til nýrra aðildarríkja harðnað. Og ekki má gleyma því að enn sem komið er hefur hvert hinna 27 aðildarríkja um sig, neitunarvald um allar þær breytingar sem gera þyfti á óumsemjanlegu grundvallarregluverki ESB til þess að Já-sinnar sæju sína óljósu drauma rætast í aðildarviðræðunum. Er Já-sinnum t.d. ljóst að sérhver ríkisstjórn innan ESB verður að bera fjárlög hvers árs undir hina ókjörnu framkvæmdastjórn ESB, til samþykktar eða synjunar? Er slíkt háttur fullvalda ríkja? Nær útilokað má telja að önnur ESB-ríki féllust á að Ísland, eitt ríkja, yrði undanþegið þessari kröfu. Eða er firring Já-sinna orðin slík að þeir telji það léttvægt að ókjörin valdastofnun úti í Evrópu hafi síðasta orðið um séríslensk málefni. Ekki halda að um rútínustimplun sé að ræða. Framkvæmdastjórnin hefur þegar sýnt að hún grípur óhikað og óþyrmilega inn í ef henni sýnist ríkisstjórnir ætla út af þeirri nýfrjálshyggjubraut sem hún hefur markað. Ætla íslenskir vinstrimenn að standa í ístaðinu með stefnu hennar? Helsta von stuðningsmanna ESB, innan lands sem utan, um að jáið hafi betur á komandi kjördegi er að nógu margir sem ekki eru endilega fylgismenn inngöngu í sambandið fáist til að segja já. Á þeim forsendum m.a. að það sem þeir vita ekki núna (og vilja sumir alls ekki vita) verði þeim morgunljóst eftir margra ára aðildarviðræður bak við luktar dyr og að fengnu inngöngusamkomulagi, sem tæplega verður mjög skýrt orðað. Það mun svo verða túlkað og fegrað með blekkingum og fagurgala sömu aðila og nú reyna sem mest til að villa um fyrir þjóðinni. Nema að bætt verður í. (Jú, það eru kannski smá vankantar svona, en það verður nú ekkert mál að bæta úr þeim, þegar við erum búin að segja já aftur. Nebblega þegar við erum komin með sæti við borðið sko, ha?) Eru öll þau sem ætla að segja já til að sjá viss um að þau muni vita nóg að loknu aðildarferli til að geta tekið upplýsta ákvörðun þá? Eða ætla þau bara að láta það ráðast og treysta því að þetta reddist nú hvort sem er einhvern veginn? Ekki væri það nú með öllu óíslensk afstaða. En hvað með að segja já núna af því að alltaf er hægt að segja nei seinna? Sálfræðingar þekkja vel að þannig vinnur mannshugurinn sjaldnast. Ákvörðun á seinni stigum hallast nær alltaf að því að réttlæta þá ákvörðun sem tekin var áður, jafnvel (og ekki síst) þótt mann gruni að hún hafi ekki verið of vel ígrunduð. Er þá flest tínt til. Flestir hafa að einhverju marki reynt þetta á sjálfum sér. Kosturinn JÁ-NEI er auk heldur ekki á kjörseðlinum. Þar eru einungis kostirnir JÁ (sem virkar eins og JÁ-JÁ) og NEI. NEI í kjörklefanum þann 29. ágúst þýðir ekki að verið sé að segja nei við neinu öðru en óvissuferð í boði ríkisstjórnarinnar þar sem ekkert er að vinna en verulega miklu að tapa. Með því að halda ríkisvaldinu innan landsteinanna munum við áfram halda okkar góðu samskiptum við Evrópu jafnt sem heiminn utan hennar og engum dyrum loka. NEI er svarið. Höfundur er formaður samtakanna „Til vinstri við ESB“. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun