SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar 24. ágúst 2026 20:00 Það dylst engum að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), með löglærða framkvæmdastjóra sinn í stafni, eru mótfallin öllum tilraunum til að færa íslenskt efnahagslíf nær Evrópusambandinu. Reyndar má velta fyrir sér hvort sú stefna sé frekar mótuð með hliðsjón af hagsmunum atvinnugreinarinnar sjávarútvegs eða eigenda sjávarútvegsfyrirtækjanna. Það sem gæti hentað eigendum er ekki endilega það sem ýtir undir hagfellda þróun atvinnugreinarinnar. Frétt í Fiskifréttum frá 5. mars í ár varpar ljósi á málið (https://fiskifrettir.vb.is/islensk-fiskvinnsla-i-storhaettu/). Í fyrirsögn er því haldið fram að um 50.000 tonn séu flutt út lítt- eða óunnin árlega. Stórir miðlarar kaupa mikið magn á fiskmörkuðum væntanlega í umboði erlendra vinnslufyrirtækja. Í fréttinni er því haldið fram að kvótalausar vinnslur á Íslandi berjist í bökkum vegna þess að þær geta ekki borgað sama verð og erlendu aðilarnir borga. Ástæðan er að tollar á fiskafurðum inn í ESB fara eftir vinnslustigi, enginn tollur af óunnum fiski, og að jafnaði stighækkandi eftir vinnslustig. Nú kann vel að vera að það sé dýrara að vinna fisk á Íslandi en í Póllandi. Tollar á vörur unnar á Íslandi auka þá enn á samkeppnisforskot erlendu vinnslunnar. Það er engum blöðum um það að fletta að tollaumhverfið takmarkar þróunarmöguleika lítilla kvótalausra vinnslufyrirtækja. Þannig eiga og reka Samherji og Vinnslustöðin eigin vinnslufyrirtæki í ýmsum Evrópulöndum. Eðlilega þarf ekki að greiða toll af vöru sem fullunnin er í þessum vinnslustöðum og seld innan ESB. Kjósi íslensku eigendurnir að vinna íslenskan óunnin fisk í eigin vinnslustöð í ESB njóta þeir hlutdeildar í þeirri virðisaukningu sem þannig verður til en hlutdeild íslensks vinnuafls í vinnslunni er takmarkað. Í þessu tilfelli fara hagsmunir eigenda stæstu sjávarútvegsfyrirtækjanna ekki endilega saman við hagsmuni sjávarútvegsins sem atvinnugreinar á Íslandi. Sérlausn Noregs í aðildarsamningi 1994 Noregur, Svíþjóð, Finnland og Austurríki gerðu aðildarsamning við ESB árið 1994. Í þeim samningi er m.a. fjallað um hlutdeildir strandríkjanna þriggja í veiðum úr sameiginlega nýttum fiskistofnum. Í grein í Morgunblaðinu 29. júní s.l. fór einn norsku samningamannanna, Torben Foss, sem var sviðsstjóri sjávarútvegs í norska atvinnuvegaráðuneytisins 1990-1999, yfir innihaldið í samningnum hvað aflahlutdeildir Noregs varðaði. Í greininni segir hann m.a.: „Í upphafi er rétt að undirstrika að Ísland mun ekki tapa ráðstöfunarrétti þeim fiskveiðiauðlindum sem það nýtir nú þegar. Ísland mun væntanlega beita sömu aðferð og Noregur, Svíþjóð og Finnland gerðu í aðildarviðræðunum 1994. Þar voru hlutdeildir þessara landa í hinum ýmsu veiðistofnun tilgreindar í sjálfum aðildarsáttmálanum. Frá lagalegum sjónarhóli jafngildir það þinglýsingu eignarréttinda. Þessi eignarréttindi hafa sama lagalega gildi og ESB-sáttmálinn. Önnur aðildarríki ESB geta engu þar um breytt nema með samþykki Íslands. Skiptir engu hversu mörg ríkin eru, án samþykkis Íslands yrðu ekki gerðar breytingar á hlutdeildunum. Orðræðan um að ný aðildarríki ESB eigi á hættu að tapa veiðiréttindum sem þau hafi haft er ósönn og röng. Hlutdeildir hvers lands um sig Finnlands, Svíþjóðar og Noregs í veiðum þeirra fiskistofna sem þau nýttu var felldur inn í sameiginlegan aðildarsamning þjóðanna sbr. greinar 44, 94 og 121, en þar er tilgreind hundraðshlutfall hverrar þjóðar í leyfilegum hámarksafla (TAC) viðeigandi veiðistofna með þriggja aukastafa nákvæmni! Þessi ákvæði standa nú gagnvart Finnlandi og Svíþjóð óbreytt frá því sem var fyrir 30 árum síðan.“ Þess má geta að það var Torben sem átti hugmyndina um að tilgreina aflahlutdeildir Noregs í texta aðildarsamningsins og gefa þeim þar með stjórnskipulegt vægi „jafnfætis æðstu réttarheimildum ESB-réttarins“ og setja þær þar með skör hærra en t.d. regluna um hlutfallslegan stöðugleika. Þessi lýsing féll ekki vel að sögunni sem SFS og framkvæmdastjórinn höfðu spunnið upp. Inntak þeirrar sögu er með orðum framkvæmdastjórans: „Sameiginleg fiskveiðistefna ESB átti að gilda um Noreg við inngöngu og úthlutun heimilda þar með í samræmi við gildandi reglur.“ Frásögn Torbens segir allt aðra sögu. Við þessu bregst framkvæmdastjórinn m.a. færslu á Facebook með fullyrðingunni: “Aðildarsamningurinn kvað því ekki á um að hlutdeildin skyldi vera fastsett eða að hún skyldi ákveðin samkvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika.” Fullyrðingin er áréttuð í sjónvarpsþættinum Spursmál 5.8.2026 þar sem framkvæmdastjórinn lætur fyrst að því liggja og fullyrðir síðan að Torben Foss, fari með rangt mál um innihald þess samnings sem hann átti sinn afgerandi þátt í að móta og ná fram! (https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/08/06/eg_verd_bara_ad_leidretta_thetta/). Torben Foss var lykilmaður í samninganenfnd Noregs við ESB árið 1994 og gengdi auk þess mikilvægu embætti í sjávarútvegsráðuneytinu. Með þessum orðum ræðst framkvæmdastjórinn harkalega að starfsheiðri embættismannsins og lögfræðingsins Torbens Foss og gerir lítið úr lögfræðilegu framlagi hans til samningslausnarinnar sem Norðmenn náðu árið 1994. Þessi lögfræðilega hugmyndavinna Torbens er þó ekki ómerkilegri en svo að hún hefur gagnast bæði Finnum og Svíum vel eins og rakið er hér að ofan. Framkvæmdastjórinn og prófessorarnir þrír Víkur þá sögu að álitsgerð þriggja lagaprófessora við Háskólann í Reykjavík með deildarforsetann Dr. Gunnar Þór Pétursson í broddi fylkingar um forræði á náttúruauðlindum í ljósi reglna Evrópuréttar. Álitsgerðin er samin að beiðni ríkisstjórnar Íslands. Í þeim kafla álitsgerðarinnar sem fjallar um sjávarauðlindina segir orðrétt: „Í aðildarviðræðum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands við ESB árið 1994 voru hlutdeildir þessara landa af leyfilegum hámarksafla (TAC) í hinum ýmsu veiðistofnum tilgreindar í sjálfum aðildarsáttmálanum, bæði sem fastur kvóti og hlutdeild. Færu íslensk stjórnvöld fram á að svipuð leið yrði farin að því er varðar hlutdeild í deilistofnum á Íslandsmiðum yrði að gæta þess sérstaklega að hlutdeild Íslands í deilistofnum héldist, jafnvel þó að reglunni um hlutfallslegan stöðugleika yrði á einhverjum tímapunkti breytt á vettvangi Sambandsins.“ (bls 101). Í kafla 8.3 í álitsgerðinni er kveðið á um lögformlega stöðu aðildarsamnings: “Aðildarsamningur hefur stjórnskipunarlegt vægi sem setur hann jafnfætis æðstu réttarheimildum ESB-réttarins – það hefur áhrif á stöðu hans og beitingu til frambúðar – verður ekki haggað o.s.frv. án samþykkis allra ríkjanna þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði. Þetta er grundvallaratriði þegar kemur að undanþágum og hvernig þær eru búnar í aðildarsamningi, sérstaklega hvað varðar ótímabundnar (verulegar) undanþágur.” Höfundar álitsgerðarinnar eru þannig fullkomlega á sama máli og Torben Foss, og á öndverðum meiði við framkvæmdastjóra SFS, varðandi réttaráhrif ákvæða í aðildarsamningi Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Austurríkis hvað varðar hlutdeild Noregs í leyfilegum hámarksafla úr hinum ýmsu veiðistofnum. Morgunblaðið leitar eftir viðbrögðum framkvæmdastjóranum við álitsgerð prófessoranna þriggja. Framkvæmdastjórinn slær því föstu að: “„… ný lögfræðileg álitsgerð þriggja lagaprófessora sýni(r) að ekki (er) raunhæft að gera ráð fyrir varanlegum undanþágum frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB.“” Svarið er þvert á þær niðurstöður sem raktar eru að ofan og sömuleiðis þvert á kafla 8.4 í álitsgerðinni sem ber heitið “Aðildarsamningar – dæmi um undanþágur, sérlausnir, öryggisákvæði og yfirlýsingar” þar sem prófessorarnir 3 rekja fjölda dæmi um allt þetta og taka fram að ekki sé um tæmandi yfirlit að ræða. Prófessorarnir mótmæltu túlkun framkvæmdastjórans (og eftir atvikum Morgunblaðsins) á hógværan hátt í sérstakri yfirlýsingu þar sem segir m.a.: “Á forsíðu Morgunblaðsins í dag (22.8.2026) segir: „Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur í boði við aðild“. Þessi frétt er ósönn og ekki í samræmi við álitsgerð okkar. Hér er verið að vísa í álitsgerð sem unnin var að beiðni forsætisráðuneytisins.” Lokaorð Framkvæmdastjórinn heldur því fram að Torben Foss kunni ekki skil á innihaldi einhvers mikilvægasta samnings sem hann átti þátt í að móta á starfsferli sínum. Þessu til viðbótar gerir framkvæmdastjórinn tilraun til að gefa falska mynd af niðurstöðum lagaprófessoranna þriggja. Spurningar vakna um hvort það sé svo mikilvægt að hindra að almenningur geti “skoðað í pakkann” að það megi gera atlögu að starfsheiðri erlendra og innlendra sérfræðinga með brigslum um ósannindi og/eða með “skapandi” túlkun á niðurstöðum þeirra. Höfundur er prófessor emerítus í hagfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórólfur Matthíasson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar