Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 22:41 Um daginn hlustaði ég á viðtal á visir.is við Ágúst Ólaf Ágústsson, aðstoðarmann Ingu Sæland menntamálaráðherra. Ég get nú ekki sagt að ég hafi séð ljósið þegar aðstoðarmaðurinn fór yfir ýmsar boðaðar breytingar sem snúa m.a. að námsmati og í því ljósi er ýmislegt sem mig langar að vekja athygli á. Gott og vel að breyta bókstöfum yfir í tölustafi en hverju breytir það í raun, á að breyta hugmyndafræðinni og nálguninni í núgildandi Aðalnámskrá grunnskóla? Ef ég hefði nú verið að hefja nýtt skólaár sem náms- og starfsráðgjafi eða kennari á unglingastigi og kennt m.a. 10. bekk hefði mér fundist verulega óþægilegt og óviðunandi með öllu að byrja veturinn án þess að hafa fast land undir fótum þegar kemur að námsmati og skipulagi á kennslu námsgreina. Hvað og hvernig á að meta? Námskráin byggir á hæfniviðmiðum og það á að meta framfarir nemenda. Ekki bara að kunna ákveðnar staðreyndir eða fá rétt svör við spurningu, heldur þarf nemandinn að hafa tök á að geta yfirfært og nýtt sér það sem verið er að vinna með í skólanum frá degi til dags. Í viðtalinu kom fram að það væri mun skýrara fyrir nemanda að fá 8 í staðinn fyrir B. Aðstoðarmaðurinn gat þess því miður ekki að í núverandi kerfi er lagt upp með að B merki að nemandi hafi náð öllum hæfniviðmiðum í viðkomandi námsgrein og það á alls ekki að varpa bókstöfum yfir í tölustafi eins og hann gerði. B+ og A sé þá lýsing á stöðu nemanda sem hefur aflað sér dýpri og víðtækari hæfni en lagt er upp með. Þegar þetta námsmatsform var fyrst kynnt til sögunnar var sagt að dreifingin ætti að nálgast „normalkúrfu“ – þ.e. eðlilega aðeins örfáir nemendur sem landa A á sama hátt og fáir ættu að vera með D. Við hljótum að geta áttað okkur á þessari uppbyggingu og hugsun. Samanburðarhæft námsmat? Auðvitað gæta grunnskólar jafnræðis og gegnsæis í námsmati, en samræmd próf til jafns á við skólamat geta tryggt bæði fjölbreyttara námsmat og meiri samræmingu. Hér á árum áður útskrifaðist nemandi með lokaeinkunn sem var meðaltal úr samræmdu prófi og skólaeinkunn í samræmdum greinum, sem voru á tímabili allt að sex greinar. Það er nauðsynlegt að hafa aðgengilegt miðlægt samræmt námsmat, sýnilegan framfarastuðul fyrir hvern og einn nemanda og síðan er gott að sjá stöðu sína miðað við jafnaldra. Þetta eru nauðsynlegar upplýsingar fyrir nemandann, foreldra, skóla og yfirvöld. En munum að samsetning nemendahópa er mjög mismunandi og alls ekki sanngjarnt að setja alla undir sömu mælistiku - og því ekki réttlátt að birta opinberlega niðurstöður hvers skóla fyrir sig. Hvernig verður tekið tillit til ólíkrar stöðu nemenda? Nú er boðað að taka á upp tölustafakvarða frá 1 og upp í 10 en lægst verði gefið 4, þ.e. þá er verið að segja að viðkomandi nemandi hafi náð 40% af því sem til var ætlast - en í rauninni er engin trygging fyrir því að það sé raunhæft mat. Ég spyr þá – á að hætta við að hafa einkunnir stjörnumerktar sem merkir að nemandi hafi unnið eftir einstaklingsnámskrá t.d. nemandi með greiningar sem hafa áhrif á námshæfni og námsmatið því einstaklingsmiðað? Viðkomandi stjörnumerktir nemendur sótti þá oftast um á almennum námsbrautum eða á sérnámsbrautum framhaldsskólanna. En námið á þessum brautum gengur út á að mæta ólíkum þörfum nemenda, mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Hvernig verður þessu háttað næsta vor, hvernig verður tekið tillit til ólíkra stöðu nemenda? Liggur skiptingin fyrir? Fram kom í umræddu viðtali að nú á að skipta námgrein t.d. íslensku niður í þætti; bókmenntir, ritun, stafsetningu, málfræði...... og gefa hverjum þætti ákveðið prósentuvægi. Er þessi skipting fyrirhuguð í öllum námsgreinum? Er skiptingin tilbúin í öllum greinum t.d. fyrir 10.bekk? Ef já – hvar er hægt að nálgast þær upplýsingar? Þessi skipting hefur augljóslega áhrif á kennsluna og hvernig kennari skiptir námstímanum niður á milli námsþáttanna. Er til nægilegt námsefni í öllum greinum sem tekur mið af boðaðri skiptingu? Auðvitað má alltaf breyta og endurmeta en…! Það er nauðsynlegt og grundvallaratriði að tryggja að boðaðar breytingar séu vel ígrundaðar, þær efli skólastarf, séu unnar í samvinnu þeirra sem hlut eiga að máli, vel kynntar og það sjái allir fyrir endann á breytingunum. Ég óttast að þessar boðuðu breytingar séu ekki hugsaðar til enda, það hefði þurft að gefa sér betri tíma og víðtækara samráð við þá sem hlut eiga að máli. Að byrja skólaárið í óvissu, geta ekki svarað nemendum né foreldrum og heyra svo að það þurfi að kynna og innleiða þessar breytingar lungað úr hausönninni er ekki boðlegt. Allt sem viðkemur skólanámskrám, sem taka eiga á uppbyggingu námsgreina og námsmati, þarf að liggja fyrir á fyrsta degi nýs skólaárs. Höfundur er fyrrverandi kennari og náms- og starfsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar