Formúla 1

Hamilton iðrast orða sinna: „Axla á­byrgð og mun gera betur“

Aron Guðmundsson skrifar
Hamilton lét skapið hlaupa með sig í gönur
Hamilton lét skapið hlaupa með sig í gönur Vísir/getty

Lewis Hamilton, sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn og liðsmaður Ferrari, sér eftir ummælum sem hann lét falla í samskiptum við lið sitt og í viðtölum eftir erfiða keppni í Hollandi um síðastliðna helgi. 

Hamilton endaði í fjórða sæti keppninnar, og var innan við sekúndu frá þriðja sætinu en tókst ekki að komast fram úr fyrr­verandi liðs­félaga sínum Geor­ge Rus­sell.

Pirringur Hamilton sneri að því að hann sá mögu­leika á sæti á verð­launa­palli en þurfti að verja drjúgum tíma fyrir aftan Charles Leclerc, liðs­félaga sinn hjá Ferrari eftir að hafa farið inn á þjónustu­svæði og fengið undir bíl sinn ferskari dekkja­gang.

Hann lét lið sitt heyra það eftir keppni, bæði í gegnum samskiptabúnað Ferrari bílsins sem og í viðtölum. 

Nú þegar að smá tími hefur liðið frá keppninni sér Bretinn að sér.

„Ég er búin að hlusta á samskipti mín við liðið og nokkur viðtöl sem ég fór í eftir keppni. Í hita leiksins getur stundarpirringur brotist út. Sér í lagi þegar að þetta er þér svona mikið hugarefni eins og Formúla 1 er mér. Þetta var ekki besta útgáfan af mér. Ég axla ábyrgð á því og mun gera betur,“ skrifar Hamilton í færslu á samfélagsmiðlum.

„Þessi ástríða kemur frá þeim stað að ég hef trú á liðinu, fólkinu sem þar starfar og því sem við erum að skapa saman. Stefnan er sett. Trúin til staðar og við enn með í baráttunni.“

Næsta keppni fer fram á heimavelli Ferrari á Monza á Ítalíu eftir tæpan hálfan mánuð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×