Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Lovísa Arnardóttir skrifar 25. ágúst 2026 23:49 Ásgrímur segir mikla aukningu útkalla milli ára. Bylgjan Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. „
Það er náttúrulega ákveðinn kostnaður við að reka flugdeild Landhelgisgæslunnar og ef það fara fleiri flug, þá verður hann minni á hverja flogna klukkustund og meiri eftir því sem færri flug eru farin, en við eiginlega horfum ekki í þetta svona,“ segir hann og að eins og allir björgunaraðilar hugsi þeir að þegar þörf sé á vilji þeir bjarga og koma til aðstoðar. „Og veltum svo fyrir okkur kostnaðinum frekar þá eftir á,“ segir Ásgrímur sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Spurður hvað ein flugstund kosti segir hann að í þeim tilvikum þar sem innheimtur er kostnaður við þyrluflug Landhelgisgæslunnar sé það á bilinu 700 þúsund til ein milljón. „Þar er svona tekið að einhverju leyti mið af þeim kostnaði sem er verið að greiða fyrir almennt sjúkraflug á Íslandi,“ segir hann. Hann segir Ísland aðila að alþjóðahafréttarsáttmálanum og sé þannig skuldbundið til að koma sjófarendum hérna í kringum landið til bjargar, þeim að kostnaðarlausu. „Þannig að útköll út á sjó, hvort sem það er sjúkraflutningur eða bara björgun, við sendum ekki reikning fyrir það,“ segir hann og að það fari eftir aðstæðum hvort þyrlan fari og flugvél. „Í ýmsum tilvikum sendum við flugvélina bara til þess að finna réttu flugleiðina og undirbúa skipið.“ Hann segir Ísland auk þess með samninga við sjúkratryggingar í Evrópu og ríki greiði fyrir sjúkraflutning en það gildi annað um leit. Ásgrímur segir að það hafi verið mikið að gera í sumar. „ Þetta var rólegt framan af ári en frá því að kúrfan af ferðamannatímanum byrjaði hefur verið hérna mikið að gera og 35 til 40 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra.“ Nokkuð um ökklabrot í sumar Hann segir útköllin margs konar en sem dæmi hafi verið nokkuð um ökklabrot á hálendi, er að fara af leið og eina leiðin til að komast til baka sé með þyrlu. Ásgrímur segir að þó svo að fólk hundsi fyrirmæli og sýni ábyrgðarleysi sé því bjargað. Landhelgisgæslan hafi, þegar fólk hefur sýnt mikið ábyrgðarleysi, sent reikning á tryggingafélög erlendra ríkisborgara og athugað hvort að það komi greiðsla fyrir. Það sé flókið mál að hafa uppi á tryggingafélögum og einstaklingunum en þau hafi í einstaka tilfellum gert þetta. „ „Ég myndi ekki segja góðum árangri,“ segir hann og að eigi fólk von á háum reikningum geti það jafnvel bara komið sér í verri aðstöðu. Hann segir Landhelgisgæsluna eiga þrjár þyrlur en ein sé í skoðun eða viðhaldi. Á þessu ári hafi ein þyrla verið alveg frá og það væri gott að hafa fleiri þyrlur og geta staðsett fjórðu þyrluna annars staðar á landinu. Hann segist ekki með tölur um hlutfall útkalla vegna erlendra ferðamanna en það sé alveg ljóst að frá því að ferðamönnum fór að fjölga um 2010 hefur orðið fjölgun útkalla samhliða. „Sjálfur er ég búinn að vera tengdur þessu aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar í rúm 20 ár og man eftir því þegar við vorum að fara í 120 til 150 útköll á ári en þetta er orðið núna ár eftir ár yfir 300 og toppurinn var 2024 þegar var farið í 340 útköll.“ Mannslíf ekki metin til fjár Ásgrímur segir mannslíf ekki metin til fjár og fólk sem starfi við björgun vilji stökkva til sé þörf á þeim. „Við sem erum í þessum bransa stökkvum til og gerum það sem við getum best með því sem við höfum hverju sinni og spáum svo í hinu hugsanlega eftir á.“
Landhelgisgæslan Sjúkraflutningar Heilbrigðismál Tryggingar Ferðaþjónusta Mest lesið Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Innlent Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Innlent Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Innlent Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Fleiri fréttir Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Fimm aukaíbúðir þar sem aðeins mátti vera ein Kannast ekkert við málið og segir lögreglu hafa komið fíkniefnum fyrir Blindfullum unglingum fækkar Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Margir telji húsnæði brottfararstöðvar of nærri íbúabyggð Sævar las upp yfirlýsingu: „Ég treysti ákæruvaldinu ekki“ Höfnuðu ráðgjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í forgangi Fréttir af dagsleyfi kynferðisbrotamanns slógu ráðherra illa Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Þögull sem gröfin um Sævar Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Húsnæði fundið undir brottfararstöð Óvænt gagn og afleikur ríkisstjórnarinnar „Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Sjá meira