Handbolti

Ó­trú­lega ó­sáttur við Val: „Skilið mann eftir einan í myrkrinu“

Sindri Sverrisson skrifar
Stiven Valencia á stórmóti með íslenska landsliðinu.
Stiven Valencia á stórmóti með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm

Valsarinn uppaldi Stiven Valencia, landsliðsmaður í handbolta, ber sínu gamla félagi ekki vel söguna eftir samningaviðræður í sumar og kveðst „ótrúlega ósáttur“ með þróun þeirra.

Þetta segir Stiven við Handkastið í dag en hann er samningslaus og í leit að nýju félagi eftir að þriggja ára dvöl hans hjá portúgalska félaginu Benfica lauk í vor.

Vísir leitaði eftir viðbrögðum hjá Fannari Erni Þorbjörnssyni, formanni handknattleiksdeildar Vals, sem kvaðst ekki vilja tjá sig.

Stiven er að jafna sig eftir aðgerð vegna axlarmeiðsla og reiknar með að geta byrjað aftur að spila í október. Það vonaðist hann til þess að gera með Val en viðræður við félagið hafa ekki skilað árangri.

„Ég er mjög ósáttur með það hvernig Valur hefur tekið á móti mér síðustu vikur. Það kom ekkert annað til greina hjá mér til að byrja með en að koma heim í Val og spila fyrir mitt uppeldisfélag. Ég lét þá vita strax að ég væri tilbúinn að koma heim og spila fyrir Val,“ segir Stiven við Handkastið.

Stiven sló í gegn sem leikmaður Vals og var fenginn þaðan til Benfica í Portúgal sumarið 2023.vísir/Diego

Hann veltir fyrir sér hvort að fjárhagsvandræði valdi því að Valur bjóði honum ekki viðunandi samning og segir að svo virðist sem að eina von hans um að koma aftur til félagsins sé að gera það í sjálfboðavinnu. Hann sé ótrúlega ósáttur við hvernig honum hafi verið tekið, sem „uppöldum leikmanni með stórt Valshjarta“:

„Þeir hafa í raun skilið mann svolítið eftir einan eftir í myrkrinu,“ segir Stiven.

Stiven hefur einnig rætt við þýska félagið Erlangen með það í huga að hann kæmi til félagsins næsta sumar en segir félagið hafa stigið á bremsuna vegna fyrrgreindra axlarmeiðsla. Áhuginn sé þó áfram til staðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×