Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Stefán Árni Pálsson skrifar 26. ágúst 2026 21:44 Guendouzi var ekki vinsæll í Frakklandi í kvöld. vísir/getty Fenerbahçe tryggði sér sæti í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með 2-1 sigri á Lyon í Frakklandi í kvöld. Tyrkneska liðið vann einvígið samanlagt 3-2 eftir að fyrri leikurinn í Istanbúl hafði endað 1-1.
Vedat Muriqi kom Fenerbahçe yfir á 17. mínútu eftir að hafa fylgt eftir eigin skalla. Gestirnir náðu síðan tveggja marka forskoti rétt fyrir hálfleik þegar Jayden Oosterwolde Brown skoraði eftir fast leikatriði. Lyon kom til baka í síðari hálfleik þegar Malick Fofana minnkaði muninn á 68. mínútu og heimamenn sóttu stíft eftir jöfnun. Frakkarnir héldu áfram að skapa hættu undir lokin og fengu meðal annars gott færi til að jafna, en Fenerbahçe hélt út og tryggði sér einn stærsta sigur félagsins á síðari árum. Fenerbahçe er þar með komið í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn síðan tímabilið 2008/09. Lyon situr hins vegar eftir með sárt ennið eftir að hafa verið í góðri stöðu í einvíginu fyrir síðari leikinn. Tyrkneska liðið vann einvígið 3-2 samanlagt og getur því farið að hlakka til þess að mæta stærstu liðum Evrópu í deildarkeppni Meistaradeildarinnar. Mattéo Guendouzi fékk sannarlega að finna fyrir því fyrir og eftir leik. Hann er Frakki og lék áður fyrir Marseille, erkifjendur Lyon. Guendouzi hefði mátt sleppa því sem hann gerði hér að neðan. ☠️☠️☠️☠️☠️☠️☠️ https://t.co/AZIqZgG4bz pic.twitter.com/DyfAoPzmnv— Baba (@babaFut_) August 26, 2026 Púað var á Guendouzi allan leikinn og þegar lokaflautið kom þá varð alltaf vitlaust. Leikmenn Lyon veittust að honum. Former Marseille man Mattéo Guendouzi is facing massive backlash! 😤pic.twitter.com/FdkKJRYc2v— Goals Xtra (@GoalsXtra) August 26, 2026 Svo langt gengu hlutirnir að áhorfandi stökk inn á völlinn og veittist að honum einnig eins og sjá má. 😱Mattéo Guendouzi was attacked by a Lyon fan while leaving the pitch, and that fan was subsequently beaten up by several Fenerbahçe players! pic.twitter.com/z1bVCFLX9t— Goals Xtra (@GoalsXtra) August 26, 2026 Önnur úrslit í kvöld: AEK – Lavski Sofia 4-0 – AEK komið áfram. Celje – Slovan Bratislava 1-2 – Slovan komið áfram. Viking – Dinamo Zagreb 3-1 – Viking komið áfram. Dregið verður í Meistaradeildina á föstudaginn og verður það í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan 16:00.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira