Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2026 14:15 Freyr Alexandersson með viðurkenninguna sem þjálfari júlímánaðar. Hann afhenti líka Amin Chiakha verðlaun sem hann fékk sem besti ungi leikmaðurinn í mánuðinum. Samsett/Rosenborg BK Freyr Alexandersson hefur verið valinn besti þjálfari júlímánaðar í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir stórkostlega byrjun sína með Rosenborg. Einn lærisveina hans segir hann hafa fært leikmönnum og stuðningsmönnum gleði á nýjan leik.
Undir stjórn Freys vann Rosenborg alla þrjá leiki sína í júlí svo mánuðurinn hefði ekki getað heppnast betur. Þó að liðið hafi tapað naumlega gegn Brann, félaginu sem rak Frey fyrr í sumar, í byrjun ágúst þá hefur ágústmánuður líka verið góður hjá Rosenborg sem vann frábæran 2-1 sigur á meisturum Viking í síðasta deildarleik. „Við erum með þjálfara sem hefur kynnt okkur fyrir þungarokksfótbolta og fært mörgum leikmönnum og stuðningsfólki gleði á nýjan leik,“ sagði Adrian Pereira, leikmaður Rosenborg, áður en hann veitti honum „afar verðskuldaða“ viðurkenningu vegna vals dómnefndar TV2 og Norsks toppfótbolta. Freyr þakkaði fyrir sig og sagði: „Þetta sýnir bara hve hratt hlutirnir geta breyst í fótbolta. Í byrjun mánaðarins [júlí] var ég ekki með vinnu. Ég veit ekki hvað mér finnst um svona verðlaun í hreinskilni sagt en ég tek þeim og þau hafa algjörlega ekkert með mig að gera heldur okkur. Takk!“ Freyr afhenti líka einum af leikmönnum sínum viðurkenningu sem besti ungi leikmaðurinn í júlí. Það er Amin Chiakha sem verið hefur sjóðheitur og skorað í öllum sex deildarleikjunum undir stjórn Freys, alls sjö mörk, og átt tvær stoðsendingar. Freyr kvaðst sérstaklega ánægður með orkuna í Chiakha sem sýndi sig í því að hann væri að skora mörk í uppbótartíma. Þessi tvítugi Alsíringur var að láni hjá Rosenborg en er núna búinn að skipta alveg yfir til félagsins, frá FC Kaupmannahöfn, og hefur Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg, fengið hrós fyrir að landa kappanum.
Norski boltinn Fótbolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira