Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Andri Broddason skrifar 28. ágúst 2026 15:45 Jamie Vardy er litríkur karakter og má búast við mikilli skemmtun frá honum yfir leikjum þýsku úrvalsdeildarinnar. Catherine Ivill/Getty Images Jamie Vardy, fyrrverandi leikmaður Leicester City og enska landsliðsins, mun sýna leiki í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta á YouTube-rás sinni.
Jamie Vardy stofnaði í sumar YouTube-rás sem ber nafnið „Jamie Vardy‘s Having a Party“ en hann hefur keypt réttinn á því að sýna sjö leiki í þýsku úrvalsdeildinni. Allir leikirnir sem Jamie Vardy mun sýna verða á föstudagskvöldum og verður fyrsti leikurinn sýndur í kvöld þegar Bayern Munchen tekur á móti Stuttgart í opnunarleik deildarinnar. Ekki er vitað hvernig fyrirkomulag YouTube-rásarinnar verður en stórt alþjóðlegt framleiðslufyrirtæki sér um rásina. Leikirnir á YouTube-rásinni verða aðeins aðgengilegir á Bretlandseyjum og því munu Íslendingar ekki geta notið góðs af því að sjá Vardy sýna deildina. Þýska úrvalsdeildin hefur áður sýnt leiki á YouTube á Bretlandseyjum en á síðasta tímabili fengu „The Overlap“ og „That‘s Football“ að sýna leiki deildarinnar. „The Overlap“ er rás sem er undir stjórn Gary Neville, fyrrverandi fyrirliða Manchester United, og „That‘s Football“ er undir stjórn Mark Goldbridge, stuðningsmanns Manchester United. Jamie Vardy var hluti af goðsagnakenndu tímabili Leicester City þegar félagið vann ensku úrvalsdeildina óvænt árið 2016. Hann kom til félagsins 25 ára gamall eftir að hafa leikið í utandeildum Englands. Hann fór frá félaginu árið 2025 þegar það féll úr ensku úrvalsdeildinni og hélt til Cremonese á Ítalíu. Vardy hefur ekki formlega lagt skóna á hilluna en þessa stundina er hann ekki samningsbundinn neinu liði. Hann er 39 ára gamall og var síðast leikmaður Cremonese sem lék í ítölsku úrvalsdeildinni en liðið féll í ítölsku B-deildina á síðasta tímabili.
Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Sjá meira