Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar 31. ágúst 2026 15:31 Ein af grundvallarforsendum þess að við getum eytt löngum stundum fjarri heimili okkar er aðgangur að salernisaðstöðu. Við förum áhyggjulaus í verslunarmiðstöðvar, á kaffihús, í sund, í ræktina, í gegnum flugvelli eða keyrum hringveginn vitandi það að við getum að öllum líkindum létt á okkur ef náttúran kallar. Þetta getur verið flóknara ef við erum með lítil börn eða notum hjólastól. Víða er boðið upp á ágætis aðstöðu þó svo að enn sé svigrúm til úrbóta. Hins vegar hefur einn þjóðfélagshópur að mestu orðið út undan við hönnun slíkrar aðstöðu og það eru þeir sem geta ekki nýtt sér hefðbundin salerni eða aðgengissalerni og eru orðnir of stórir eða þungir fyrir ungbarnaskiptiborð. Um er að ræða börn og fullorðna með fjölþættar fatlanir sem þurfa aðstoð við salernisferðir og geta ekki nýtt sér hefðbundna salernisaðstöðu, jafnvel þótt hún sé aðgengileg hjólastólanotendum. Þau þurfa því aðgengilegt rými og bekki svo hægt sé að skipta á stykkjum (það sem margir þekkja sem bleyjur). Möguleikar þessa hóps, ef á að eyða löngum stundum fjarri heimili, eru eftirfarandi: 1. sitja í óhreinum stykkjum og jafnvel blautum fötum þar til heim er komið,2. liggja á óhreinum gólfum á almenningssalernum (eða þar sem er pláss) svo hægt sé að skipta á stykkjum og treysta á að aðstoðarmaður/menn geti lyft viðkomandi af gólfi og í sæti,3. vera heima hjá sér. Enginn þessara möguleika styður við mannlega reisn eða þátttöku fatlaðra einstaklinga í samfélaginu. Sértækar salernisaðstöður Bretar hafa verið frumkvöðlar á þessum vettvangi með aðstöðu sem þeir kalla changing places. Þetta eru sérútbúnar, sértækar salernisaðstöður og slík aðstaða þarf að uppfylla stífar kröfur: rýmið þarf að vera að minnsta kosti 12 fermetrar, hafa upphækkanlegan bekk sem rúmar fullorðinn einstakling og lyftibúnað til að aðstoða einstaklinginn við að komast yfir á bekkinn, klósett þar sem aðstoðarmenn geta staðið beggja vegna við, skol- og hreinlætisaðstöðu og skilrúm. Slík rými hafa rutt sér til rúms víða á síðustu tveimur áratugum en árið 2021 tók gildi breyting á byggingarreglugerð í Bretlandi sem segir að nýjar byggingar sem þjónusta almenning skulu bjóða upp á slíka aðstöðu. Að auki er skylt að útbúa sértæka salernisaðstöðu ef unnið er að breytingum eða uppgerð á samskonar byggingum. Þessi lagabreyting hefur orðið til þess að árlega bætast við um 150 sértækar salernisaðstöður í Bretlandi og í dag er áætlað að þær telji um 3000 í heildina. Salernin má til að mynda finna í íþróttahúsum, verslunarmiðstöðvum, flugvöllum, bókasöfnum, lestarstöðvum og öðrum byggingum sem þjóna samfélaginu (e. leisure and community centres). Sértæka salernisaðstöðu má einnig finna í fleiri löndum. Á nýlegu ferðalagi mínu um Holland og Belgíu fann ég sértæka salernisaðstöðu meðal annars í skemmtigarði og á ströndinni í litlum ferðamannabæ. Í Noregi hefur vinsæl skyndibitakeðja tekið sig til og útbúið sértæka salernisaðstöðu á nokkrum veitingastöðum sínum. Á Írlandi hefur sænsk húsgagnaverslun tekið upp á að bjóða sértæka salernisaðstöðu á völdum stöðum. Þá eru ótalin fjölmörg önnur dæmi um alla Evrópu og sértækum salernisaðstöðum fer sem betur fer fjölgandi. Sértækar salernisaðstöður hafa verið fjármagnaðar á ýmsan hátt, hvort sem er með framlögum frá hjálparsamtökum, af sveitarfélögum sem vilja þjóna öllum þegnum sínum eða einkafyrirtækjum sem sjá hag sinn í bættu aðgengi allra. Þá má auðvitað nefna að sú leið sem Bretar kusu að fara, með lagabreytingu og eyrnamerktu fjármagni til aðstoðar sveitarfélaga, hefur skapað skýran ramma utan um aðgengi og gjörbreytt landslaginu fyrir fatlað fólk. Staðan á Íslandi Á Íslandi má ekki finna neina sértæka salernisaðstöðu að því sem ég best veit. Sumar sundlaugar eða íþróttahús bjóða upp á bekk eða sérstök rými en ekkert þeirra sem við höfum séð uppfyllir þau skilyrði að geta talist til sértækra salernisaðstaða. Ef slík aðstaða er þó til staðar er mikilvægt að hún sé vel auglýst og upplýsingar um hana aðgengilegar, svo þeir sem þurfa á henni að halda og aðstandendur þeirra geti skipulagt ferðir sínar um landið af öryggi og með sem minnstum hindrunum. Aðstaðan sjálf skiptir máli en einnig að upplýsingar um hana séu auðfundnar og áreiðanlegar. Annars nýtist hún þeim sem þurfa á henni að halda illa. Í Bretlandi er áætlað að um 250.000 einstaklingar hafi þörf fyrir sértæka salernisaðstöðu af þessu tagi. Yfirfært á íslenskar aðstæður myndi það samsvara um 1.500 einstaklingum. Fyrir þann hóp snýst málið ekki aðeins um salerni heldur um frelsið til að ferðast, sækja menningar- og íþróttaviðburði, njóta almannarýmis og taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Sértæk salernisaðstaða er því ekki munaður heldur forsenda þátttöku, reisnar og frelsis. Því hef ég sent efni greinarinnar til valinna ráðherra í núverandi ríkisstjórn og skora jafnframt á sveitarfélög, fyrirtæki og hjálparsamtök að stíga þetta mikilvæga framfaraskref í átt að auknu frelsi fatlaðs fólks á Íslandi. Höfundur er doktor í félagsfræði en fyrst og fremst frænka sem vill að ungur frændi hennar njóti þess sama frelsis til að njóta almannarýmis og flest okkar tökum sem sjálfsögðum hlut. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar