Segist aldrei hafa efast um Gakpo Valur Páll Eiríksson skrifar 5. september 2026 10:32 Iraola segist aldrei hafa efast um Gakpo þó hann hafi verið nærri því að yfirgefa Liverpool í sumar. EPA/NEIL HALL Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, fullyrðir að hann hafi aldrei efast um Cody Gakpo, jafnvel þó framherjinn hafi nærri því verið farinn frá Anfield.
Gakpo hefði getað farið á síðustu dögum félagaskiptagluggans eftir að bæði Tottenham og Manchester City buðu í hann en Liverpool kom í veg fyrir kaupin. Liverpool bauð í bæði Yankuba Minteh hjá Brighton og Ismaila Sarr hjá Crystal Palace án árangurs og ákvað því að halda Hollendingnum. Gakpo átti tvær laglegar stoðsendingar á Alexander Isak í 2-0 sigri Liverpool á Ipswich Town á Portman Road í gær. Um var að ræða fyrsta sigur Iraola við stjórnvölin. „Cody veit hversu mikils við metum hann. Það er enginn vafi. Ég met hann mikils. Það verður augljóslega mikil samkeppni um mínútur því við höfum góða leikmenn í þessum stöðum,“ segir Iraola en Liverpool festi kaup á Bradley Barcola stuttu fyrir lok félagsskiptagluggans. Sá spilaði sinn fyrsta leik í gær. „Þetta snýst um að þeir ýti hverjum öðrum áfram. Með Bradley Barcola, með Rio Ngumoha, með Victor Munoz, þá snýst þetta um að stundum byrja þeir, stundum koma þeir af bekknum, stundum spila þeir ekki, en þetta er samkeppni.“ Gakpo hefur farið glimrandi vel af stað á leiktíðinni og átt beinan þátt í marki í fyrstu þremur leikjunum. Hann hefur skorað eitt og lagt upp þrjú. „Ég held að það sé gott að hafa Cody því hann getur spilað í þremur stöðum fremst, eins og aðrir leikmenn okkar. Að hafa hann í þessari stöðu er gott,“ segir Iraola en Gakpo spilaði síðustu tuttugu mínútur leiksins eða svo sem fremsti maður eftir að hafa mannað kantstöðurnar fyrir það.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira