Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar 8. september 2026 07:30 Á degi læsis í ár verða niðurstöður PISA 2025 kynntar. Þær gefa okkur meðal annars mikilvægar upplýsingar um stöðu íslenskra nemenda í lestri og lesskilningi. Mikilvægt er að hafa í huga að PISA prófið er lagt fyrir nemendur við lok grunnskóla. Niðurstöðurnar segja því ekki aðeins til um stöðu þeirra á prófdeginum heldur endurspegla þær að miklu leyti þau tækifæri, stuðning og þá kennslu sem nemendur hafa fengið í gegnum skólagöngu sína. Læsi er vítt og flókið hugtak sem felur í sér marga þætti. Til að efla lestrarfærni barna á Íslandi þurfum við að horfa heildstætt á það hvers læsi krefst og hvernig færnin byggist upp. Þar skiptir ekki aðeins máli góð kennsla heldur einnig sameiginleg trú á því að öll börn geti lært að lesa og öll börn eigi rétt á markvissri málörvun og lestrarkennslu sem skilar árangri. Læsi byggir á tungumálinu Læsi á sér djúpar rætur í tungumálinu og því er mikilvægt að börn fái ríkuleg tækifæri til málörvunar allt frá unga aldri. Styðja þarf foreldra með fræðslu um málörvun og tryggja að leikskólar séu vel mannaðir fagfólki sem hefur þekkingu á málþroska og málörvun ungra barna. Mikilvægt er að tryggja aðgengi að almennum skimunum svo hægt sé að greina snemma þau börn sem sýna vísbendingar um vanda í málþroska. Þau börn þurfa síðan að fá viðeigandi stuðning og aðgengi að talmeinafræðingum. Snemmtækur stuðningur getur skipt sköpum og því er mikilvægt að bregðast tímanlega við. Lesa þarf vandaðar bækur fyrir börn, ræða við þau um efnið og gefa þeim fjölmörg tækifæri til að tjá sig, spyrja spurninga og velta fyrir sér því sem þau heyra. Þótt börn læri ekki sjálfkrafa að lesa af því einu að lesið sé fyrir þau eflir slíkur lestur hlustunarskilning, orðaforða og málfærni sem síðar verður mikilvægur grunnur að lesskilningi. Tryggja þarf undirstöðufærni á yngsta stigi grunnskóla Svo að lestur nýtist til náms þarf góða lestrarfærni. Öll börn eiga að fá lestrarkennslu sem byggir á traustum rannsóknum og hefur sýnt árangur í að byggja upp sterka undirstöðufærni í lestri. Við lok yngsta stigs ættu börn að hafa náð góðri færni og fimi í að lesa og skrifa texta sem hæfir aldri þeirra. Til þess þarf að fara saman vönduð kennsla, reglulegt mat á lestrarfærni og skjót viðbrögð þegar vísbendingar koma fram um að barn þurfi meiri stuðning. Kennarar þurfa að hafa aðgang að vönduðu kennsluefni, leiðbeiningum og faglegum stuðningi svo þeir geti fyrst og fremst beint sérþekkingu sinni að kennslunni, nemendum sínum og því að skapa góð námstækifæri. Við eigum ekki að bíða eftir að vandinn vaxi. Læsi heldur áfram að þróast Lestrarnámi lýkur ekki þegar tæknileg lestrarfærni er orðin góð. Færnin þarf að þróast áfram alla skólagönguna og orðaforði, færni í tungumálinu og þekking þurfa að vaxa samhliða. Eftir því sem textar verða flóknari verða þessir þættir sífellt mikilvægari. Þess vegna þurfa kennarar á öllum stigum grunnskólans að hafa góða þekkingu á lestrarkennslu og vita hvernig best er að styðja nemendur þegar þeir takast á við sífellt þyngri og fjölbreyttari texta. Skýr viðmið um árangur í lestri og ritun þurfa að vera til staðar og aðgengileg öllum sem koma að námi barna. Þannig getum við unnið saman að sameiginlegu markmiði og fylgst með framförum hvers og eins nemanda. Börn og ungmenni þurfa áhugavert lesefni Aðgengi að fjölbreyttum og vönduðum bókum á íslensku fyrir alla aldurshópa er lykilatriði ef við viljum efla lestrarfærni og lestraráhuga. Börn og unglingar þurfa að geta gengið að bókum og textum sem vekja áhuga þeirra, kveikja forvitni og vekja hjá þeim löngun til að lesa meira. Tryggja verður rithöfundum skilyrði til að skrifa vandaðar barna- og unglingabækur.Bókasöfn, bæði innan skóla og utan, gegna hér mikilvægu hlutverki. Tryggja þarf fjármuni þannig að bjóða megi fjölbreyttan og áhugaverðan bókakost og starfsfólk sem getur stutt við val á bókum sem henta áhuga og aldri. Efling læsis krefst langtímahugsunar og skuldbindingar Að efla læsi barna á Íslandi krefst sameiginlegrar sýnar, góðs skipulags til langs tíma og skuldbindingar um að styrkja tungumál og læsi frá fyrstu árum barnsins og alla skólagönguna. Svo að það megi verða að veruleika þurfa stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, að stuðla að þeirri heildarmynd sem var lýst hér að ofan. Hlúa þarf að skólastarfi og skapa kennurum góð skilyrði til að veita nemendum sínum bestu mögulegu lestrarkennslu og hvatningu. Rannsóknir á læsi, kennaramenntun og öflug endurmenntun eru mikilvægur hluti þess stuðnings sem kennarar þurfa. Læsi gefur svo ótrúlega margt Læsi opnar dyr. Það gefur börnum og unglingum: aðgang að ævintýraheimi bókanna, þekkingu og nýjar hugmyndir, tækifæri til náms og þroska, aukið aðgengi að upplýsingum, tækifæri til að efla gagnrýna hugsun, sjálfstraust og tækifæri til að hafa áhrif í samfélaginu, möguleika á að mennta sig til þeirra starfa sem hugurinn stendur til. Læsi er þannig lykill að þátttöku, tækifærum og lífsgæðum. Nýtum niðurstöðurnar úr PISA til góðs. Lítum á þær sem tækifæri til að læra, spyrja spurninga, styrkja það sem vel er gert og finna nýjar leiðir þar sem betur má fara. Sameiginlegt markmið okkar er að hvert einasta barn á Íslandi upplifi þann kraft, gleði og frelsi sem læsi veitir. Stöndum saman um læsi. Gleðilegan dag læsis! Fyrir hönd stjórnar Félags læsisfræðinga á Íslandi. Höfundur er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun