Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar 8. september 2026 19:31 Ný Pisa-könnun Nú er hrópað "frammistaða barna á Íslandi hafi hrunið". Þeim líður samt vel. Háskólasamfélgið og menntayfirvöld bera hér mikla ábyrgð á menntunarstiginu, en börnin eru þolendur sem bera mistökin til næstu kynslóðar. Þegar Kennaraháskólinn var lagður niður 2008 og námið og þróunarstarfið lagt inn í Háskóla Íslands var við þessu varað. Háskólinn með sína "akdemisku" nálgun myndi fjarlægjast starf kennarans á gólfinu og vinnuna með börnin á vettvangi. Áherslurnar breyttust, framgangur byggðist á rannsóknum og ritrýndum greinum en miklu síður á kennslunni sjálfri og starfi kennarans. „Kennaramenntunin“ lenti þá í samkeppni við önnur svið innan Háskólans um fjármagn og þróunarstarf og "akademiskan" framgang, Ég man frá umræðunni á þessum tíma 2008 var það nefnt að eftir 10 til 15 ár frá árinu 2008 færu að sjá þess alvarlegu merki í samfélaginu sem nákvæmlega eru að koma á daginn. Kennaraháskólinn og kennaramenntun þarf að geta þróast á sínum eigin forsendum sem kennslustofnun og skóli sem miðar að starfsmenntun og starfi á vettvangi. Hér er ekki við kennarana sjálfa eða börm að sakast. Háskóli Íslands ræður ekki við verkefnið Áfram mun „Háskólasamfélagið“ ekki þora að líta í eigin barm og frekar mun vera kallað á alla aðra og svo börnin töluð niður sem þolendur. Vissulega er þetta nokkur einföldun en hollt væri að lesa umræður og greinargerðir með lögunum um að leggja Kennarahaskólann niður á sínum tíma 2008 Svo sorglega stemma varnaðarorðin sem þá voru flutt. Í mínum uppvexti var kennarastarfið talið eitt það mikilvægasta hjá þjóðinni. Byggðar kennaraíbúðir við hlið skólanna til þess að tryggja stöðu góðra kennara. Úr ræðu á alþingi þegar samþykkt var að leggja Kennaraháskólann niður 17. mars 2007 „Háskóli byggist á fólki og þeim nemendum sem þar eru á hverjum tíma og styrkur þeirra er oft smæðin og viðbragðsflýtirinn. Þetta er einmitt atriði sem Jón Torfi Jónasson bendir á í greinargerð sinni um málið. Ég ætla ekki að fara að leggja stein í götu málsins um að Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands fái að sameinast, en ég vara við því að fólk beri allt of miklar væntingar til þess að allt breytist til batnaðar. Vandinn hefur verið fjársvelti þessara stofnana. Vandinn hefur verið það á undanförnum árum í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur menntakerfið verið fjársvelt. Þróunarmöguleikar hafa verið sveltir, takmarkaðir. Það hefur leitt til þess að ýmsar stofnanir hafa leitað annarra ráða og haldið að það geti hjálpað þeim út úr vandræðunum. Við höfum fengið hvert einkavæðingarfrumvarpið á fætur öðru. Hugmyndir ráðherra um að einkavæða skólakerfið og að í gegnum það fái það fjármagn, sem er líka jafnfráleitt. Sjálfstæður Kennaraháskóli á ný Ég vil því ljúka þessum orðum mínum, frú forseti, á að segja fólki sem heldur að sameining Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands leysi eitthvað eða sé eitthvert bjargræði til framtíðar, þá vil ég vara við miklum væntingum í því. Styrkur svona skóla er að eiga sinn eigin styrk og það er hann sem á að standa vörð um og engin sameining kemur í staðinn fyrir þann styrk sem við ræktum innan hverrar stofnunar.“ Höfundur er fyrrverandi rektor Hólaskóla á Hólum í Hjaltadal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar