Viðskipti innlent

Bein út­sending: Hærri skattar, töpuð tæki­færi?

Lovísa Arnardóttir skrifar
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra er einn viðmælenda á fundinum.
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra er einn viðmælenda á fundinum. Anton Brink

Í dag fer fram opinn fundur á vegum Samtaka fyrirtækja á fjármálamarkaði í Smárabíói. Fundurinn hefst klukkan 9 en er einnig í streymi. Í tilkynningu um fundinn segir að á honum eigi að ræða hvar íslenskt fjármögnunarumhverfi standi og í hvaða átt það stefni.

„Hvaða áhrif hafa skattar, regluverk og aðgerðir stjórnvalda í þeim efnum? Hvar liggja framtíðartækifærin til að fjármagna íslenskt atvinnulíf í átt til bættra lífskjara? Hversu mikil áhrif hefur fyrirsjáanleiki í skattlagningu og reglusetningu á samkeppnishæfni Íslands?“

Í tilkynningu segir að þessum spurningum og mörgum fleiri verði velt upp á fundinum auk þess sem fjallað verður um skatta á íslenska banka í alþjóðlegum samanburði.

Fundarstjóri verður Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF.

Þátttakendur á fundinum verða:

  • Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Ellert Arnarson, fjármálastjóri Amaroq Minerals
  • Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og stofnandi Intellecon
  • Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri Arion banka
  • Ingvar Haraldsson, greiningar- og samskiptastjóri SFF
  • Íris Björk Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF
  • Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
  • Lars Christensen, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Ipace
  • Lev Ratnovski, hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
  • Reynir Stefán Gylfason, endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG
  • Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins
  • Tanya Zharov, lögfræðingur og stjórnarmaður í atvinnulífins





Fleiri fréttir

Sjá meira


×