Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Aron Guðmundsson skrifar 14. september 2026 07:32 Framundan er langt endurhæfingartímabil hjá Róberti Frosta sem sleit krossband á æfingu á dögunum. Mynd: GAIS Róbert Frosti Þorkelsson, leikmaður GAIS í Svíþjóð, upplifði mikið sjokk er hann meiddist illa á æfingu með liði sínu. Hann vissi um leið að eitthvað alvarlegt hefði átt sér stað. „
Þetta er náttúrulega mikið sjokk. Þegar þetta gerist þá vill maður ekki alveg trúa þessu,“ segir Róbert Frosti í samtali við Vísi en hann sleit krossband á æfingu með GAIS. „Þeir gerðu eitthvað próf þarna á mér og læknarnir sögðu að þeir héldu að þetta væri krossbandið. Sögðu að það væri 95 prósent líkur á því. Maður hélt enn þá í vonina með þessi 5 prósent en svo kemur náttúrulega í ljós að þetta er að sjálfsögðu krossbandið. Þetta er erfitt og ég held ég sé ekki alveg búinn að átta mig á þessu. Ég er að fara í pressu á hafsent. Ætla að fara í stefnubreytingu og festist bara í grasinu og hnéð. Það kemur bara slinkur á fótinn, heyrist hátt brak og maður varð alveg hræddur.“ Hvernig voru viðbrögðin bara þegar þetta gerist? Hvað upplifirðu, hverju finnurðu fyrir? Varstu til að mynda strax viss um að þetta væri alvarlegt? „Þegar maður heyrir brakið og festist svona. Þá veit maður alveg stöðuna. Það stoppa allir, sjúkraþjálfararnir byrja að hlaupatil manns. Maður veit í rauninni alveg strax að þetta sé eitthvað alvarlegt en maður bara vonar að þetta sé ekki það versta.“ Finnur fyrir miklum stuðningi Róbert Frosti er á leið í aðgerð og ljóst að framundan er langt endurhæfingarferli. „Við erum að bíða eftir að bólgan hjaðni. Það getur tekið tvær vikur eða meira jafnvel. Aðgerð framundan og síðan byrjar bara endurhæfingin almennilega eftir það. Ég í rauninni veit ekki alveg hver tímaramminn er á þessu. Sagt níu til tólf mánuðir en ég held það sé mikilvægt í þessu að fara ekkert of snemma af stað. Taka sér meiri tíma í þetta heldur en að ýta á eitthvað. Ég bara vona að allt gangi sem best og það verði ekki mikið af einhverjum hnökrum á leiðinni.“ Róbert Frosti hefur þurft að harka í atvinnumennskunniGAIS Það er gott fólk í kringum leikmanninn unga sem greip hann. „Ég er að fá skilaboð úr öllum áttum. Það er frábært og ég er mjög þakklátur fyrir fólkið sem ég er með hérna og fólkið mitt heima. Svo þekki ég fullt af fólki sem hefur lent í þessu sama, jafnvel tvisvar og þrisvar. Ég er með fullt af góðu fólki í kringum mig og get alltaf fengið hjálp. Er þakklátur fyrir það.“ Ekki verið dans á rósum Tímapunkturinn hvað svona meiðsli varðar er aldrei góður. Þau koma hins vegar á tímapunkti fyrir Róbert Frosta þar sem hann var orðinn fastamaður í liði GAIS eftir erfitt fyrsta tímabil í atvinnumennsku. Á yfirstandandi tímabili hefur hann byrjað nær alla leiki GAIS og skorað fjögur mörk. „Þetta var búið að vera frábært tímabil fyrir mig og svona skemmtilegasta tímabilið mitt líka. Það er ömurlegt að það séu tíu leikir eftir, ég á svona góðu skriði. Leiðinlegt að þetta sé búið núna en það er kannski engin betri tímasetning en önnur þegar um svona ræðir.“ Kappinn er uppalinn Garðbæingur og sló í gegn hér heima áður en leiðin lá í atvinnumennskuna. Hér er Róbert í leik með Stjörnunni gegn Víkingi Reykjavík.Vísir/Pawel Cieslikiewicz „Ég upplifði krefjandi tímabil í fyrra. Ég spilaði ekki neitt í rauninni og ætlaði mér sæti í liðinu á þessu tímabili. Ætlaði bara að sýna að ég sé með þetta. Ég er búinn að spila fullt á þessu tímabili og þá gerist þetta. Mikið svekkelsi sem því fylgir að vera búinn að vinna sig inn í liðið og lenda svo í þesus. En ég gæti ekki beðið um betra umhverfi til að vera í núna þegar að ég geng í gegnum þetta.“ Auðvitað er þetta þannig séð nýskeð og allt það en nærðu á þessum tímapunkti einhvern veginn að einblína á jákvæða punkta? „Já, ég held það. Núna er ég meira að reyna að horfa í það jákvæða, reyna halda í jákvæðnina. Það munu koma góðir dagar og slæmir í þessu. Til að mynda þegar maður sér þessa stóru leiki, þarf að mæta á þá og vera uppi í stúku. Ég hugsa að það verði alveg erfitt. En á sama tíma minnir það mann á af hverju maður er að koma til baka. Þetta er erfitt en samt svo ógeðslega gaman þegar þetta er gaman. Maður fer bara í gegnum erfiðleikana.“
Sænski boltinn Íslendingar erlendis Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira