Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar 16. september 2026 09:01 Við tölum gjarnan um náttúruna eins og hún sé eitthvað fyrir utan okkur. Við þurfum að „vernda náttúruna“, sem er vissulega rétt. Í slíkri orðræðu gleymist þó stundum mikilvæg staðreynd: Við erum sjálf hluti af náttúrunni. Við erum náttúran. Manneskjan varð ekki til og getur ekki lifað utan náttúrunnar. Við öndum að okkur lofti, drekkum vatn, nærumst á lífverum og efnum úr náttúrunni og erum í stöðugu og viðkvæmu sambandi við örverur, efni, plöntur, dýr, jarðveg, birtu, hitastig, rafsegulsvið og aðra umhverfisþætti. Við gegnum einnig hlutverki í örfínu jafnvægi náttúrunnar, og innri náttúra okkar lifir í nánu og flóknu samspili við önnur kerfi náttúrunnar. Líf og heilsa manneskjunnar eru því ekki aðskilin frá heilsu þeirra vistkerfa sem við erum hluti af. Heilbrigð náttúra og vistkerfi hefur ekki aðeins fagurfræðilegt gildi, eða er eitthvað sem við njótum í frítíma okkar. Þegar við röskum kerfum náttúrunnar erum við ekki aðeins að hafa áhrif á gróðurþekju, jarðveg, jökla, fjöll, vatn, loftslag, loftgæði, efnasamsetningu, rafsegulsvið, fjölbreytileika, plöntur og dýr. Við erum að breyta því umhverfi sem mannslíkaminn þarf til að viðhalda heilsu. Við erum að raska heilbrigði. Þess vegna eru umhverfisbreytingar ekki aðeins spurning um jarðefnaeldsneyti, losun eða kolefnistölfræði. Þær eru heilbrigðismál. Náttúruvernd er líka vernd fyrir okkur Heilsa verður ekki til inni á heilbrigðisstofnunum einum saman. Hún verður til þar sem við lifum: á heimili okkar, í skólanum, á vinnustaðnum og í samfélaginu okkar. Hún verður til í loftinu sem við öndum að okkur, vatninu sem við drekkum, matnum sem við borðum og þeim náttúrulegu og félagslegu aðstæðum og tengslum sem umvefja okkur. Manneskjan hefur á örfáum kynslóðum skapað umhverfi sem er mjög ólíkt því umhverfi sem er henni eðlislægt. Við verjum stórum hluta ævinnar innandyra (allt að 90%), búum í byggingum úr fjölbreyttum efnum, notum fjölda hreinsi- og snyrtivara, umkringjum okkur húsgögnum, fatnaði, raftækjum og öðrum neysluvörum úr stóriðnaði og öndum að okkur lofti, drekkum vatn og neytum fæðis sem getur innihaldið fjölmörg efni og mengunarvalda. Að auki erum við umkringd öðru áreiti og streitu, eins og skjám, gervilýsingu, hávaða, umferð, vinnuálagi og stöðugu upplýsingaflæði. Umhverfið og náttúran sem við búum í eru mikilvæg heilsu okkar Líkami okkar er magnaður, jafnvel nánast fullkominn, og er stöðugt að reyna að heila sig og hreinsa, m.a. til að aðlagast breytingum í umhverfinu. Alveg eins og náttúran sjálf. En líkaminn getur ekki starfað óháð umhverfinu. Þegar ágangur og streita verða of mikil, of langvarandi eða of margþætt getur innra jafnvægi raskast. Þá geta veikindi, verkir, sjúkdómar, sjálfsofnæmi, taugaraskanir og aðrar raskanir gert vart við sig. Ágangur og ójafnvægi verður fyrst var hjá fólki sem býr við langvinn veikindi, aldraða, börn og ungmenni, en það þýðir þó ekki að áreitið hafi ekki áhrif á okkur öll. Við þurfum öll að draga úr álagi og skapa náttúrunni rými fyrir hvíld og endurheimt. Rannsóknir sýna t.d. að dvöl í náttúrulegu umhverfi minnki streitu, auki vellíðan og virkni (Twohig-Bennett & Jones, 2018; Kondo o.fl., 2020: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/29982151/). Náttúran er þannig mikilvæg fyrir endurheimt og bata, og fyrir fólk sem býr við umhverfisveikindi eða önnur langvinn veikindi, er heilnæmt umhverfi forsenda lífs. Börn og náttúran Börn eru í stöðugum vexti og þroska. Heilinn, ónæmiskerfi, taugakerfi og hormónakerfi eru að mótast. Börn þurfa ekki aðeins að vera vernduð gegn skaðlegum umhverfisáhrifum. Þau þurfa líka jákvæð samskipti við náttúruna. Sem betur fer hafa rannsóknir á þessu sviði stóraukist á síðustu árum. Í kerfisbundinni yfirlitsrannsókn á 296 rannsóknum á tengslum náttúru og heilsu barna, var sýnt fram á tengsl náttúru við hreyfingu og geðheilsu (Fyfe-Johnson o.fl., 2021: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/34588297/ ). Önnur kerfisbundin samantekt fann almennt jákvæð tengsl milli grænna svæða og vellíðan barna (Vanaken & Danckaerts, 2018 https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/30486416/ ). Líffræðileg fjölbreytni er heilbrigðismál Líffræðileg fjölbreytni er einnig heilbrigðismál. Fjölbreytt vistkerfi eru grunnur að þessu örfína og viðkvæma kerfi sem náttúran er. Þegar líffræðileg fjölbreytni hnignar erum við ekki bara að missa einstakar tegundir. Við erum að veikja náttúruna, sem við erum sjálf hluti af. Við erum náttúra – náttúran er við. Í dag er dagur íslenskrar náttúru. Íslensk náttúra er stórbrotin, viðkvæm og einstök. Hún er ekki einungis eitthvað þarna úti, heldur er hún grunnur fyrir heilbrigði og framtíð okkar allra. Þegar við verndum náttúruna erum við ekki aðeins að vernda heiminn og jörðina sem við búum á. Við erum að vernda lífsskilyrði okkar – og lífsskilyrði barnanna okkar, barnabarna og barnabarnabarna. Við berum ábyrgð gegn komandi kynslóðum, og hvert lítið skref skiptir máli. Heilnæmt umhverfi og náttúra fyrir öll, ekki bara SUM. Höfundur er lögfræðingur og framkvæmdastjóri SUM - Samtaka um áhrif umhverfis á heilsu og með alþjóðadiplómu á mastersstigi í Umhverfis- og auðlindafræðum frá HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Dagur íslenskrar náttúru Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Skoðun Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar