Viðskipti innlent

Byggja eitt stærsta gagnaver Ís­lands á Bakka

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þóra Helgadóttir segir að gagnaverið gæti orðið það stærsta á Íslandi.
Þóra Helgadóttir segir að gagnaverið gæti orðið það stærsta á Íslandi. Samsett

Til stendur að byggja eitt stærsta gagnaver Íslands við Bakka á Húsavík. Uppbyggingin muni fjölga störfum í bænum töluvert og kosta um 120 milljarða króna. Bandarískur tæknirisi gæti orðið viðskiptavinur gagnaversins.

Uppbyggingin var kynnt á skipulagsfundi á Húsavík í dag.

„Hugmyndin sem kom fram á þessum skipulagsfundi í dag er að byggja upp stórt gagnaver á iðnaðarsvæðinu Bakka. Það er verkefni sem er búið að vera í vinnslu í talsvert langan tíma en núna fyrst erum við að kynna verkefnið fyrir almenningi,“ segir Þóra Helgadóttir Frost, forstjóri viðskiptaþróunar hjá Akur Capital, sem sér um uppbygginguna.

Þau hafi átt í nánu samstarfi við sveitarstjórn Norðurþings vegna verkefnisins og fengið sömuleiðis jákvæð viðbrögð í samfélaginu við nýju atvinnutækifæri.

Gagnaverið á að bjóða upp á 100 MW gagnavinnslu og kosta milljarð Bandaríkjadollara, um 120 milljarða króna. Þegar er hafið samtal við Landsvirkjun um rafmagnsnotkunina.

Akur Capital sér einungis um fjárfestingu í uppbyggingu húsnæðisins en viðskiptavinur þess muni greiða fyrir innviðina. Þau eiga í samningaviðræðum við bandarískt stórfyrirtæki á sviði gervigreindar en ekki má enn uppljóstra um hvaða fyrirtæki það er. 

Uppbygging húsnæðisins muni skapa á milli fjögur og fimm hundruð störf en gangi allt eftir hefjast framkvæmdirnar á fyrsta ársfjórðungi árið 2027. 

„Hvað varðar fastráðin störf eftir á eru það um fimmtíu störf,“ segir Þóra og bætir við að það muni einnig skila sér afleiddum störfum.

Skapi fleiri störf eftir endalok kísilmálmframleiðslunnar

Líkt og kom fram er verkefnið unnið í samráði við sveitarstjórn Norðurþings. Fjölda fólks var sagt upp þegar PCC BakkiSilicon hf. þurfti að stöðva kísilmálmframleiðsluna sína.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði afskipti af málinu og skipaði starfshóp sem hafði það að markmiði að kortleggja stöðu atvinnumála á svæðinu og vinna tillögur að viðbrögðum stjórnvalda. Þar tók Kristrún fram að fimm til sex fjárfestingaraðilar hefðu áhuga, þar á meðal eitt gagnaver.

Þóra segir að einnig verði hugað að sjálfbærni við uppbyggingu gagnaversins og sé markmiðið að það verði sjálfbært. Sömuleiðis verði til mikil þekking á svæðinu um hvernig eigi að byggja upp gagnaver á skilvirkan hátt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×