Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar 16. september 2026 10:46 Þegar ríkisstjórn hefur allt niður um sig í efnahagsmálum getur verið freistandi að skipta um umræðuefni. Ótímabær ofuráhersla á bókun 35 ber þess einmitt merki. Það er þægilegra fyrir ríkisstjórnina að rífast um númeraða bókun, en að svara fyrir eigin efnahagsstjórn. Heimilin borga ekki reikningana með lagatæknilegum orðaskiptum. Bókun 35 er í grunninn lagatæknilegt úrlausnarefni innan EES-samningsins, ekki nýr aðildarsamningur við Evrópusambandið. Hún snýst um hvaða innlendu reglur gangi framar þegar rétt innleiddar EES-reglur rekast á önnur lagaákvæði. Hún veitir ekki óinnleiddum tilskipunum frá Brussel sjálfkrafa lagagildi á Íslandi. Vissulega þarf að standa við skuldbindingar Íslands og athugasemdir ESA við innleiðinguna eru réttmætar. Málið þarf því að leysa, en það er engin ávísun á að samþykkja frumvarpið óbreytt. Á sama tíma má ekki láta ríkisstjórnina komast upp með að veifa bókun 35 eins og rauðri dulu framan í stjórnarandstöðuna til að beina athyglinni frá eigin efnahagsstjórn. Skýrari texti og sterkari fullveldisvörn Núverandi frumvarp hefur þegar fyrirvara um að Alþingi geti mælt fyrir um annað en forgang innleiddra EES-reglna. Í greinargerðinni er jafnframt tekið fram að forgangurinn nái ekki gagnvart stjórnarskránni og að ákvæðið veiti reglugerðum ekki forgang fram yfir lög. Ég tel þó að frumvarpið eigi ekki að samþykkja óbreytt. Þessi mikilvægu mörk eiga að koma skýrt fram í lagatextanum sjálfum. Gera þarf fyrirvarann um löggjafarvald Alþingis að sjálfstæðri og skýrri málsgrein og taka af tvímæli um að ákvæðið feli ekki í sér sjálfstæða heimild til framsals ríkisvalds. Jafnframt þarf að tryggja að sjálfstæðar íslenskar viðbótarkröfur fái ekki sérstakan forgang eingöngu vegna þess að þær séu settar samhliða innleiðingu EES-reglna. Með sérstakri upplýsingaskyldu verði ráðherrum gert að sýna hvers EES-samningurinn krefst og hvað þeir kjósa sjálfir að bæta við. Íslensk pólitík á ekki að geta dulbúið sig sem evrópska skyldu. Tími gullhúðunar er liðinn Þann 29. ágúst hafnaði meirihluti kjósenda því að skoða aðild að ESB. Það var ekki atkvæðagreiðsla um bókun 35. Eftir sem áður voru pólitísku skilaboðin skýr: meiri áhersla á fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt, ekki meiri ákafi í að ganga lengra en nauðsynlegt er. Þeim skilaboðum á að mæta með skýrari vörnum í lagatexta, ekki bara fallegum orðum í ræðustól um að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði virt. Laga þarf innleiðingu bókunar 35. Betur þarf að tryggja að hún verði hvorki farvegur fyrir óþarfa viðbótarkvaðir né skjól fyrir ríkisstjórn sem vill tala um annað en eigin árangur. Það er kominn tími til að ríkisstjórnin hífi upp um sig í efnahagsmálunum. Bókun 35 gerir það ekki fyrir hana. Höfundur er bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar