Segir að Messi eigi að vinna Gullknöttinn Valur Páll Eiríksson skrifar 17. september 2026 12:01 Beckham styður Messi til sigurs umfram landa sinn Harry Kane sem talinn er líklegastur samkvæmt veðbönkum. EPA Fótboltagoðsögnin David Beckham, meðeigandi Inter Miami, segir að Lionel Messi, leikmaður liðsins, eigi að vinna Gullknöttinn, Ballon d'Or, sem besti leikmaður heims.
Messi skoraði sitt hundraðasta mark fyrir Inter Miami í gær þegar liðið vann 2-0 sigur á Cruz Azul í Campeones Cup, árlegri meistarakeppni Bandaríkjanna og Mexíkó. Messi hefur átt gott ár og fór fyrir landsliði Argentínu sem komst í úrslit á HM í sumar en tapaði þar fyrir Spáni eftir framlengdan leik. Þá hefur hann verið lykilmaður Inter Miami sem varð MLS-meistari í fyrsta sinn og fylgdi því eftir með titli gærkvöldsins. Harry Kane, leikmaður enska landsliðsins og Bayern Munchen, er talinn líklegastur til að hreppa Gullknöttinn en hann skoraði 73 mörk fyrir Bayern Munchen og enska landsliðið á síðustu leiktíð. Beckham styður hins vegar Messi til níunda Gullknattar hans fremur en landa sinn Kane. „Ég held að þegar maður sér hann gera hluti eins og í kvöld, þegar maður sér hann eiga það heimsmeistaramót sem hann átti, þá er það ekki heppni að hann komi aftur til greina fyrir Gullknöttinn,“ sagði Beckham á Apple TV eftir leik gærkvöldsins. „Það er ekki heppni því hann var sennilega besti leikmaðurinn á mótinu. Hann átti ótrúlegt ár í fyrra.“ „Hann kom inn í það mót, heimsmeistaramótið, 39 ára gamall. Að hafa áhrif á heimsmeistaramót og hvern einasta leik eins og hann gerði. Það er sérstakt. Það er enginn 39 ára sem gerir það og gerir það á þessu stigi. Þannig að hann á skilið að koma til greina fyrir Gullknöttinn. Að mínu mati ætti hann að vinna hann,“ segir Beckham og bætir við: „Það eru frábærir leikmenn þarna eins og Harry Kane, Kylian [Mbappé], Jude Bellingham og aðrir leikmenn, en þú veist, þegar maður talar um Leo, þá er ég hans stærsti stuðningsmaður.“ Hin árlega hátíð Gullknattarins fer fram 26. október næstkomandi í Lundúnum.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira