Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. september 2026 08:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. vísir/einar/vilhelm „Það er augljóst að ef farið verður í þessar breytingar þá munu breytingarnar ganga út á það að Ríkisútvarpið, sem er eini fjölmiðillinn sem er vel haldinn af fjármunum, verði jafnsett en skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á.“
Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ljósi þess að ráðherra er veitt heimild til að taka yfir skuldir Ríkisútvarpsins sem nema um fjórum milljörðum króna í nýju fjárlagafrumvarpi. Tengist fyrirhuguðum breytingum á auglýsingamarkaði Í lið 7.11 í heimildum til ráðherra í nýju fjárlagafrumvarpi sem Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, kynnti á dögunum má finna heimild til að taka yfir skuldabréf Rúv. „Að taka yfir skuldabréf hjá Ríkisútvarpinu ohf., f.h. ríkissjóðs, sem útgefið var vegna uppgjörs á lífeyrisskuldbindingum í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins,“ segir í frumvarpinu. Í greinargerð með frumvarpinu er tekið fram að um nýja heimild sé að ræða. Heimildin feli í sér að lagt sé til að taka yfir skuldabréfin og að höfuðstóll lánsins sé um fjórir milljarðar króna. Áætluð árleg greiðslubyrði er um 285 milljónir króna að meðtöldum verðbótum. „Ákvörðun um mögulega yfirfærslu á skuldabréfinu tengist áformuðu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið en með því frumvarpi stendur til að skerða auglýsingatekjur um sambærilega fjárhæð og greiðslubyrði lánsins nemur,“ segir í greinargerðinni. Hugmyndin kom fyrst fram í aðgerðaáætlun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra varðandi málefni fjölmiðla sem var kynnt í lok síðasta árs. Þar er skuldayfirtakan kynnt sem leið til að létta af rekstri Ríkisútvarpsins og draga úr kostnaði vegna eldri lífeyrisskuldbindinga. „Tilgangurinn er að styðja betur við efnahag og rekstur félagsins. Með þessu er jafnframt að hluta komið til móts við tekjutap Rúv vegna annarra aðgerða í aðgerðaáætluninni. Skuldabréfið hefur lengi verið þungur baggi fyrir rekstur og eigið fé RÚV ohf., bæði vegna hárra vaxta og hárra afborgana,“ segir í umræddri kynningu. Ríkið eigi ekki að senda aukareikning á skattgreiðendur Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, segir það koma á óvart að umrædd aðgerð hafi ekki verið kynnt með betri hætti. „Ég myndi ætla að í þessu fjölmiðlaumhverfi væri svona þokkaleg sátt um það að ríkið myndi aðeins halda aftur af sér til að gefa öðrum tækifæri og svigrúm. En það er ekki. Ríkið á að vera jafnsett og jafnsterkt á markaðnum en það á ekki að senda aukareikning á skattgreiðendur. Þeir eru nú svo sannarlega að fá nóg af reikningum nú þegar.“ Hann segir þetta skilaboð um að aðrir fjölmiðlar eigi einfaldlega að halda áfram að berjast í bökkum. „Það á alls ekki með neinum hætti að veita öðrum fjölmiðlum meira svigrúm því að það virðist vera afgreitt forgangsmál að yfirburðastaða Ríkisútvarpsins verði áfram til staðar.“ Það skjóti skökku við að taka við frekari skuldum í nýju fjárlagafrumvarpi. „Því meira sem maður kafar ofan í þetta fjárlagafrumvarp þá sér maður bæði skattahækkanir og síðan hluti eins og þessa og það eru auðvitað engar líkur á því að þau verði hallalaus þessi fjárlög. Í ofanálag þá liggur alveg fyrir að þó svo að þau eigi að vera hallalaus þá munu skuldir aukast mikið. Þannig að fjárlagafrumvarpið er ákveðið uppgjör en síðan eru sumir sem eiga að koma vel út úr því og þar á meðal er Ríkisútvarpið.“
Ríkisútvarpið Fjárlagafrumvarp 2027 Alþingi Fjölmiðlar Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira